Fótbolti

Guðlaugur Victor og félagar halda í við toppliðin

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Schalke unnu mikilvægan sigur í dag.
Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Schalke unnu mikilvægan sigur í dag. Twitter/Schalke

Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Schalke unnu mikilvægan 2-1 sigur er liðið tók á móti Regensburg í þýsku B-deildinni í dag.

Andreas Nielsen Albers kom gestunum í Regensburg yfir eftir rúmlega hálftíma leik og staðan var því 1-0 þegar flautað var til hálfleiks.

Simon Terodde jafnaði metin fyrir Schalke á 63. mínútu áður en Malick Thiaw tryggði heimamönnum 2-1 sigur tíu mínútum síðar.

Guðlaugur Victor lék allan leikinn á miðjunni hjá Schalke, en liðið situr nú í þriðja sæti deildarinnar með 37 stig eftir 21 leik, tveimur stigum á eftir toppliði Darmstadt sem hefur þó leikið einum leik minna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×