Steindautt jafntefli á Elland Road

Fátt var um fína drætti á Elland Road í dag.
Fátt var um fína drætti á Elland Road í dag. Getty Images/Laurence Griffiths

Leeds United og Manchester United skildu jöfn, 0-0, í tilþrifalitlum leik í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þeir síðarnefndu misstu af tækifæri til að setja pressu á granna sína frá Manchester-borg í titilbarátunni.

Fátt er hægt að taka til úr leik liðanna í dag sem var ekki mikið fyrir augað. Luke Shaw hefði getað fengið á sig vítaspyrnu í fyrri hálfleik þegar hann var talinn handleika knöttinn innan teigs en myndbandsdómarar voru ekki á því.

Leiknum lauk 0-0 og er Manchester United með 67 stig í öðru sæti, tíu frá toppliði Manchester City, þegar fimm leikir eru eftir. Stigið skýtur Leeds upp fyrir Arsenal í níunda sæti þar sem þeir hvítklæddu eru með 47 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira