Danir skoruðu átta, öruggt hjá Eng­landi og dramatík hjá Spáni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ferran Torres skoraði mark þeirra spænsku í dag.
Ferran Torres skoraði mark þeirra spænsku í dag. Tamuna Kulumbegashvili/Getty

Fjölda leikja er lokið í undankeppni HM í Katar 2022 en þrír leikir hófust á sama tíma og leikur Armeníu og Íslands.

Spánn náði að tryggja sér sigurinn á loka andurtökunum gegn Georgíu á útivelli. Lokatölur 2-1.

Khvicha Kvaratskhelia kom Georgíu yfir á 44. mínútu en á tólftu mínútu síðari hálfleiks jafnaði Ferran Torres metin.

Daniel Olmo skoraði sigurmarkið á 93. mínútu og tryggði Spáni 2-1 sigur. Þeir eru með fjögur stig en Georgía ekkert.

Danmörk niðurlægði Moldóvu í F-riðlinum, 8-0, en Danir eru með sex stig eftir fyrstu tvo leikina. Moldóva er án stiga.

Mikkel Damsgaard og Kasper Dolberg gerðu tvö mörk og þeir Jens Stryger Larsen, Mathias Jensen, Robert Skov og Marcus Ingvartsen gerðu eitt hver.

England vann svo 2-0 sigur á Albaníu. Harry Kane skoraði fyrra markið á 38. mínútu og Mason Mount það síðara á 63. mínútu.

England er með sex stig en Albanía þrjú.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira