Fótbolti

Segja Pir­lo fá einn leik til að bjarga starfinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Andrea Pirlo er þjálfari Juventus.
Andrea Pirlo er þjálfari Juventus. Gabriele Maricchiolo/NurPhoto

Ítalski vefmiðillin Tuttosport greinir frá því að Andrea Pirlo, stjóri Juventus, fái einn leik til að bjarga starfinu.

Juventus tapaði ansi óvænt 0-1 fyrir Benevento í Seria A um helgina en Benevento er í sextánda sæti deildarinnar.

Juventus er í þriðja sætinu á Seriu A og eru tíu stigum á eftir toppliði Inter er ellefu umferðir eru eftir.

Tuttosport greinir frá því að pressan er orðin all veruleg á Andrea Pirlo sem tók við Gömlu konunni í sumar.

Juventus er úr leik í Meistaradeildinni eftir tapið gegn Porto í sextán liða úrslitunum og goðsögnin er undir pressu.

Landsleikjahlé er nú á Ítalíu, eins og í flestum deildarkeppnum heims, en Juventus mætir grönnunum í Tórínó þann 3. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×