Sport

Hjör­var Steinn vann Ís­lands­bikarinn í skák

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hjörvar Steinn vann Íslandsbikarinn í skák í dag.
Hjörvar Steinn vann Íslandsbikarinn í skák í dag. Skáksamband Íslands

Hjörvar Steinn Grétarsson vann Íslandsbikarinn í skák í dag. Ásamt því að verða fimmtándi stórmeistari í sögu Íslands þá tryggði Hjörvar Steinn sér þátttökurétt á Heimsbikarmótinu sem fram fer í Sochi í Rússlandi í sumar.

Hjörvar Steinn mætti Hannesi Hlífari Stefánssyni í úrslitaeinvígi Íslandsbikarsins. Síðari skák þeirra fór fram í dag og tryggði Hjörvar Steinn sér sigur á mótinu með sigri þar.

Alls vann Hjörvar fimm af þeim sex kappskákum sem hann tefldi á mótinu. Þá vann hann báðar atskákir sínar.

Nánar má lesa um mótið inn á Skák.is.

Næst á dagskrá er Íslandsmótið í skák þann 29. mars. Sjö af átta keppendum Íslandsbikarsins eru skráðir til leiks á Íslandsmótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×