Fótbolti

Bayern vann í snjónum í Berlín

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leroy Sane á fleygiferð í snjónum.
Leroy Sane á fleygiferð í snjónum. Boris Streubel/Getty Images

Bayern München er með tíu stiga forskot á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Herthu Berlín í höfuðborg Þýskalands í kvöld.

Bæjarar fengu vítaspyrnu strax á tólftu mínútu. Markahrókurinn Robert Lewandowski fór á punktinn en honum brást bogalistinn.

Einungis níu mínútum síðar skoraði Kingsley Coman fyrsta og eina mark leiksins eftir stoðsendingu frá Thomas Muller. Lokatölur 1-0.

Bayern er með 48 stig á toppi deildarinnar. Leipzig er í öðru sætinu með 38 stig en á þó leik til góða um helgina.

Hertha Berlín er í fimmtánda sætinu með sautján stig, jafn mikið og Arminia Bielefeld sem er í umsspilssæti um fall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×