Viðskipti erlent

Bezos hættir sem for­stjóri Amazon

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Jeff Bezos.
Jeff Bezos. Leonard Ortiz/Digital First Media/Orange County Register via Ge

Jeff Bezos, stofnandi og forstjóri stórfyrirtækisins Amazon, hyggst láta af stöðu forstjóra fyrirtækisins.

Andy Jassy, yfirmaður skýjavinnslu (e. cloud computing) hjá fyrirtækinu, mun taka við stöðu forstjóra samkvæmt bandarískum fjölmiðlum.

Bezos hyggst þó ekki hætta afskiptum af fyrirtækinu, heldur mun hann færast í stöðu stjórnarformanns. New York Times segir Bezos á síðustu árum hafa fjarlægst daglegan rekstur fyrirtækisins, en hann hafi þó komið að honum í auknu mæli eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á.

Virði Amazon hefur farið hækkandi í faraldrinum, enda býður fyrirtækið upp á heimsendingu á ýmiskonar vörum, auk streymisveitu sem hefur vaxið í vinsældum frá því faraldurinn hófst.

„Ég tel að hugvitið hjá Amazon hafi aldrei verið meira en nú, sem þýðir að þetta er frábær tími fyrir þessar breytingar,“ er haft eftir Bezos í tilkynningu frá Amazon.

Jeff Bezos er, þegar þetta er skrifað, ríkasti maður heims samkvæmt Forbes. Hann er metinn á rúmlega 196 milljarða Bandaríkjadala, eða 25,4 billjónir íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×