Menning

Ósýnilegi óvinurinn í Katrínarborg – verður skák vinsælli en klósettpappír?

Hrafn Jökulsson skrifar
Áskorendamótið hefur farið hressilega af stað. Og hafa þegar nokkur óvænt úrslit litið dagsins ljós.
Áskorendamótið hefur farið hressilega af stað. Og hafa þegar nokkur óvænt úrslit litið dagsins ljós.

Áskorendamótið í skák í Katrínarborg í Rússlandi hélt áfram á miðvikudag, í dimmum skugga óvissu. Nú fyrir helgi var öllum íþróttaviðburðum í Rússlandi frestað eða aflýst – nema áskorendaeinvíginu. Alþjóðaskáksambandið FIDE stendur að mótinu og forsetinn Arkady Vladimirovich Dvorkovich leggur talsvert undir. Dvorkovich var aðstoðarforsætisráðherra í stjórn Medvedevs 2012-18 og er því eins innarlega í rússneska valdakerfinu og komist verður.

Hinn mikli Vladimir Kramnik heimsmeistari 2000-7 er furðu lostinn yfir því að mótið skuli fara fram, svona einsog ekkert hafi í skorist. Rússnesk yfirvöld eru harðlega gagnrýnd fyrir algjöran skort á viðbúnaði vegna kóróna-veirunnar, og má því miður búast við slæmum fréttum úr austurvegi á næstu dögum.

En meðan ekkert smit greinist á skákstað munu meistaranir átta halda áfram tafli í Katrínarborg, og mál til komið að segja frá útslitum í 2. umferð.

Caruana Fabiano 1 - 0 Kirill Alekseenko

Ian Nepomniachtchi ½ - ½ Alexander Grischuk

Wang Hao ½ - ½ Anish Giri

Maxime Vachier-Lagrave 1 - 0 Ding Liren

Ding heillum horfinn

Í fyrradag spáðu margir honum sigri á mótinu -- nú húkir Ding Liren einn í kjallaranum í Katrínarborg, búinn að tapa í fyrstu tveimur umferðunum. Á þriðjudag var hann fórnarlamb Frakkans vígreifa, Vachier-Lagrave, sem hefur reiknigetu á við meðal heimilistölvu.

Stöldrum við. Ding Liren tapar ekki skák á hverjum degi, hvað þá tvo daga í röð. Hann tefldi hundrað kappskákir án þess að tapa, langflestar gegn bestu skákmönnum heims, á tímabilinu frá ágúst 2017 til nóvember 2018. Það þurfti sjálfan Magnus Carlsen til að slá þetta met.

Grischuk og Nepo olnbogast í upphafi skákar. Þeir gleymdu sér í lokin og tókust í hendur...

Áður en Ding fagnaði tvítugsafmæli hafði hann í þrígang sigrað á hinum firnasterku meistaramótum Kína -- í öllum tilvikum án þess að tapa skák.

Á áskorendamótinu í Berlín 2018 tapaði Ding Liren ekki skák.

Þannig að það eru fréttir til næsta bæjar þegar Ding tapar tveimur í röð.

Eru möguleikar hans úr sögunni? Auðvitað ekki alveg, það eru tólf umferðir eftir. En sigur Dings, úr því sem komið er, kallar á tafarlausa upprisu sporðdrekans frá Wenzhou. Hann mætir Caruana í 3. umferð á fimmtudag.

Þar verður Ding að leggja allt undir. Þeir Caruana hafa teflt 10 skákir og þar er stál í stál: 2 sigrar, sex jafntefli og tvö töp.

Caruana í góðum gír

Caruana, já. Hann tók Kirill Alekseenko í kennslustund í 2. umferð og tefldi í senn af miklu sjálfsöryggi og fjöri. Caruana er greinilega að ydda stíl sinn, með góðum árangri.

Næstu umferðir skera úr um hvort hinn 22 ára Alekseenko á erindi á ofurskákmót. Hann hafði svart í fyrstu umferðunum, en í þriðju umferð fær hann að stýra hvítu mönnum gegn þeim ófyrirsjáanlega Nepomniachtchi. Það er í fyrsta sinn sem þeir landarnir mætast við skákborðið – og segir sitt um hve Alekseenko er blautur bakvið eyrun.

Caruana annaðist útför Alekseenkos eftir öllum kúnstarinnar reglum.

Það munaði litlu að við fengjum þriðju sigurskákina í 2. umferð. Wang Hao var með Anish Giri bókstaflega í köðlunum langtímum saman, en best klæddu jafnteflisvél skáksögunnar tókst að bjarga hálfum vinningi í hús. Tap hefði þýtt að óhætt hefði verið að afskrifa Giri strax. En það var nú ekki einsog margir hefðu veðjað á hann hvort sem er.

Caruana er í efsta sæti í veðbönkum skákmanna. Á Facebook-síðunni Íslenskir skákmenn spá flestir Caruana sigri, m.a. Bragi Þorfinnsson stórmeistari. Anand heimsmeistari er sömu skoðunar, samkvæmt erlendum miðlum, en Anatoly Karpov telur (eða taldi, öllu heldur) að Ding væri sigurstranglegastur. Hannes Hlífar telur að Vachier-Lagrave sigri á mótinu, en það er líka morgunljóst að Nepomniachtchi á marga grjótharða aðdáendur.

Litríki meistarinn með erfiða nafnið

Nepomniachtchi – endilega æfið ykkur á framburðinum, nafnið þurfa allir skákunnendur að kunna! – væri auðvitað verðugur andstæðingur fyrir Carlsen í ljósi þess að Rússinn hefur sigrað norska heimsmeistarann fjórum sinnum en aðeins tapað einni skák.

Nepo, einsog hann er kallaður af þeim sem gefist hafa upp á framburðinum, gerði jafntefli við Grischuk í 2. umferð. Þar bar hæst að þeir tókust í hendur að aflokinni skák, nokkuð sem til skamms tíma hefði ekki þótt tíðindum sæta á skákmóti.

Reyndar er meisturunum í Katrínarborg í sjálfsvald sett hvort þeir takast í hendur við upphaf og lok skákar. Þegar Karpov lék fyrsta leikinn fyrir Giri gegn Nepomniachtchi tók hollenski ljúflingurinn í hönd gamla heimsmeistarans en Nepo krosslagði hendur, brúnaþungur.

Áskorendamótið fer firnavel af stað, þótt kringumstæður séu súrrealískar. Fjörugar skákir og óvænt úrslit -- hvað viljum við hafa það betra? En ósýnilegi óvinurinn getur bundið endi á veisluna hvenær sem er.

En þangað til. Njótum þess að fylgjast með snilldinni og lifum okkur inn í spennuna. Þetta er um það bil eina keppnin í nokkrum sköpuðum hlut sem nú fer fram í heiminum.

Sumir sjá í þessu augljós sóknarfæri, til dæmis Anish Giri: „Skák á eftir að verða vinsælli en klósettpappír!“

----

Hér eru tenglar á beinar útsendingar og heimasíðu mótsins. Frábært tækifæri til að fylgjast með bestu skákmönnum heims. Á heimasíðunni er líka að finna margvíslegan fróðleik um kappana átta í Katrínarborg.

Áskorendamótið í skák hófst í vikunni. Hvenær ef ekki nú, á tímum kórónaveiru, er ástæða til að lyfta andanum og fylgjast með hinni göfugu andans íþrótt skák? Vísir ætlar í það minnsta að hafa augun hjá sér og fékk Hrafn Jökulsson sérstaklega til skoða mótið. Hrafn er forseti skákfélagsins Hróksins, hefur fylgst með skákinni áratugum saman og það sem meira er, hann kann ekki síður að halda um penna en stýra svörtu og hvítu mönnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×