Ca­vani og Marti­al skutu United í undan­úr­slit

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Cavani fagnaði marki sínu á sinn einstaka hátt.
Cavani fagnaði marki sínu á sinn einstaka hátt. EPA-EFE/Clive Brunskill

Manchester United tryggði sér sæti í undanúrslitum enska deildabikarsins með 2-0 sigri á Everton á Goodison Park í kvöld.

Gestirnir frá Manchester byrjuðu af krafti í kvöld en Everton óx ásmegin. Staðan þó markalaus í hálfleik og í raun stefndi í vítaspyrnukeppni er Edinson Cavani kom Manchester United yfir á 87. mínútu.

Úrúgvæinn fékk þá sendingu frá Anthony Martial, lagði boltann fyrir sig og þrumaði knettinum í netið. Staðan orðin 1-0 og eftir það sóttu bæði lið eins og um borðtennis væri að ræða.

Það var svo Anthony Martial sem gulltryggði sigur Man Utd með marki í uppbótartíma. Staðan orðin 2-0 og reyndust það lokatölur leiksins. United því komið í undanúrslit enska deildabikarsins ásamt Manchester City, Tottenham Hotspur og Brentford.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira