RB Leipzig komst á­fram á kostnað Manchester United

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
RB Leipzig er komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar en Man Utd situr eftir með sárt ennið.
RB Leipzig er komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar en Man Utd situr eftir með sárt ennið. Mario Hommes/Getty Images

RB Leipzig lagði Manchester United af velli í kvöld og tryggði sér þar með sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Lokatölur 3-2 í vægast sagt kaflaskiptum leik. Man United fer í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar í staðinn.

Heimamenn í Leipzig byrjuðu frábærlega og kom vinstri bakvörðurinn Angeliño heimamönnum yfir strax á 2. mínútu leiksins. Sá fagnaði vel og innilega en bakvörðurinn er á láni hjá Leipzig frá erkifjendum United í Manchester City.

Á 13. mínútu var staðan orðin 2-0 þegar Amadou Haidara skoraði eftir fyrirgjöf Angeliño frá vinstri. Haidara var einn á auðum sjó inn á teig Man Utd og tvöfaldaði forystuna. Willi Orban hélt svo að hann hefði svo gott sem tryggt sigurinn með marki á 30. mínútu en það var dæmt af. 

Staðan 2-0 í hálfleik en síðari hálfleikur átti heldur betur eftir að vera fjörugur. Það er að segja síðustu 20 mínútur leiksins eða svo.

Bruno Fernandes þrumaði í slá um miðbik síðari hálfleiks, heimamenn fóru í sókn og skömmu síðar var Justin Kluivert búinn að koma þeim í 3-0. Mark þar sem varnarlína Man Utd leit skelfilega út, ekki í fyrsta skipti í leiknum, og David De Gea virtist einfaldlega ekki vilja fá boltann í sig í marki þeirra.

Staðan orðin 3-0 og þar með virtust Leipzig öruggt með sæti í 16-liða úrslitum en Man Utd gafst þó ekki svo glatt upp. Bruno minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 80. mínútu og tveimur mínútum síðar skoraði Paul Pogba. 

Staðan allt í einu orðin 3-2 og gestirnir þurftu aðeins eitt mark í viðbót. 

Þrátt fyrir að sækja linnulaust undir lok leiks kom markið ekki og Leipzig fer því í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar á meðan Man Utd þarf að sætta sig við Evrópudeildina.

Í hinum leik H-riðils átti sér stað einn ótrúlegasti leikur síðari ára. Því miður ekki á jákvæðan hátt en bæði lið gengu af velli eftir um það bil tuttugu mínútur þar sem fjórði dómari leiksins gerðist sekur um kynþáttafordóma.


Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira