Innlent

Sjö greindust með veiruna innanlands

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
visir-img
Vísir/Vilhelm

Sjö greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þeir voru allir í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is.

Þrír þeirra sem greindust í gær greindust við einkennasýnatöku en hinir fjórir við sóttkívar- og handahófsskimanir.

Alltaf eru tekin aðeins færri sýni um hlegar en á virkum dögum og í gær voru tekin 410 einkennasýni og 39 sýni við sóttkvíar- og handahófsskimun.

197 eru nú í einangrun með Covid-19, 460 manns eru í sóttkví og 1.141 í skimunarsóttkví. Þá eru 36 manns á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu.

393 sýni voru tekin við landamæraskimun. Tveir greindust með virkt smit á landamærunum í gær og aðrir þrír bíða niðurstöðu mótefnamælingar.

Nýgengi innanlandssmita er 46,4 og nýgengi landamærasmita 9,5. Bæði nýgengin hafa hækkað eilítið frá því sem var í gær.

Alls hafa 5.496 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. 27 manns hafa látist vegna Covid-19.

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×