Samstarf

Opinn fundur Sam­taka fjár­mála­fyrir­tækja um efna­hags­leg á­hrif heims­far­aldursins

SFF

Bein útsending verður hér á Vísi frá opnum fundi Samtaka fjármálafyrirtækja sem hefst klukkan 15. Á fundinum verður farið yfir glímuna við efnahagsleg áhrif Covid -19.

Bein útsending verður hér á Vísi frá opnum fundi Samtaka fjármálafyrirtækja sem hefst klukkan 15. Fundarstjóri er Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri SFF.

Á fundinum verður farið yfir glímuna við efnahagsleg áhrif Covid -19. Litið verður yfir farinn veg, hvernig tekist hefur til í viðbrögðum við áhrifum faraldursins og hvað hefði mátt gera betur. Þá verður einnig litið fram veginn í átt að heillavænlegri viðspyrnu fyrir samfélagið allt. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum hér fyrir neðan:


Ávörp flytja:

  • Lilja Björk Einarsdóttir, formaður SFF
  • Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra
  • Dr. Christian Ossig, framkvæmdastjóri Þýsku bankasamtakanna og formaður framkvæmdastjórnar EBF

Pallborð: 

  • Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika
  • Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Íslandsbanka
  • Stefán Broddi Guðjónsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum í Arion banka
  • Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur SFF, stýrir pallborði





Fleiri fréttir

Sjá meira


×