Viðskipti erlent

Fyrr­verandi for­stjóri Al­þjóða­bankans: „Heimurinn gæti orðið eins og árið 1900“

Sylvía Hall skrifar
Robert Zoellick, fyrrverandi forstjóri Alþjóðabankans.
Robert Zoellick, fyrrverandi forstjóri Alþjóðabankans. Vísir/Getty

Robert Zoellick, fyrrverandi forstjóri Alþjóðabankans, segir nauðsynlegt að lönd heimsins taki höndum saman til þess að tækla þá efnahagskreppu sem blasir við í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Ef lönd færu að einangra sig og loka á alþjóðasamvinnu gæti ástandið versnað til muna.

„Heimurinn gæti orðið eins og hann var árið 1900 þegar stórveldi voru í samkeppni,“ sagði Zoellick í samtali við breska ríkisútvarpið. Samstaða væri lykilatriði í átt að betra efnahagsástandi um allan heim.

Zoellick gagnrýndi einnig Donald Trump Bandaríkjaforseta harðlega. Hann segir spennuna á milli Kína og Bandaríkjanna vera mikið áhyggjuefni og mikla ógn við þá vinnu sem framundan er vegna efnahagsástandsins. Samband þjóðanna væri í frjálsu falli. „Ég held við vitum ekki hvar botninn er, og það er mjög hættuleg staða.“

Hann kallaði eftir því að Trump myndi frekar leggja áherslu á því að vinna að lausn með Kína, frekar en að kenna þeim um vandann. Persónuleiki forsetans væri að valda meiri skaða en stefnumál hans.

Zoellick var forstjóri Alþjóðabankans frá árinu 2007 til ársins 2012 og vann því náið með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og ríkisstjórnum heimsins í kjölfar efnahagshrunsins. Hann benti á að þá hefðu þjóðir heimsins unnið saman að endurreisn kerfisins en hann óttaðist að staðan væri önnur í þetta skiptið.

„Við höfum ekki sömu samstöðu núna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×