Erlent

97 létust í flugslysinu

Sylvía Hall skrifar
Svartur mökkur steig upp frá slysstað og að minnsta kosti fimm hús eru gjörónýt eftir slysið.
Svartur mökkur steig upp frá slysstað og að minnsta kosti fimm hús eru gjörónýt eftir slysið. Vísir/getty

Í það minnsta 97 létust þegar pakistönsk farþegaþota brotlenti í íbúðarhverfi í borginni Karachi í gær. Flugriti vélarinnar er fundinn og munu flugmálayfirvöld rannsaka slysið.

Tveir komust lífs af úr slysinu en vélin var af gerðinni Airbus A320 og var á leið frá Lahore til Karachi með 99 farþega um borð. Enginn á jörðu niðri lést af völdum slyssins og er talið að aðeins farþegar vélarinnar séu á meðal hinna látnu.

Vélin hafði verið að reyna að gera aðra tilraun til lendingar þegar slysið varð en síðustu skilaboð frá flugstjóra vélarinnar var tilkynning um tæknileg vandamál. Nokkrum sekúndum fyrir brotlendingu vélarinnar tilkynnti flugstjórinn flugumferðarstjórn að báðir hreyflar vélarinnar væru hættir að virka að því er fram kemur á vef Reuters.

Svartur mökkur steig upp frá slysstað og að minnsta kosti fimm hús eru gjörónýt eftir slysið. Tahir Hussain, flugvirki hjá flugfélaginu, varð vitni að slysinu og sagði slysið hafa hljómað eins og jarðskjálfta.

„Við heyrðum gífurlegan hvell. Þetta hljómaði ekki eins og brotlending heldur meira eins og jarðskjálfti. Við héldum að veggur eða vatnstankur hefði hrunið en þegar við vorum komin upp á þak sáum við reyk úti um allt.“

Neyðarástandi var lýst yfir á öllum sjúkrahúsum borgarinnar, en töluvert álag er nú þegar á spítölunum vegna kórónuveirunnar.


Tengdar fréttir

Tugir fórust í flugslysinu í Pakistan

Að minnsta kosti þrjátíu og sjö fórust og enn fleiri er saknað eftir að pakistönsk farþegaflugvél brotlenti í íbúðahverfi í borginni Karachi í dag. Þremur hefur verið bjargað enn sem komið er, tveimur farþegum og einum íbúa hverfisins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×