Leicester komst aftur á sigurbraut

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
vísir/getty

Leicester komst aftur á sigurbraut eftir skellinn á móti Liverpool þegar liðið vann West Ham nú síðdegis.

Leicester fékk vítaspyrnu snemma leiks en Lukasz Fabianski varði spyrnuna frá Demarai Gray.

Gestirnir náðu þó að komast yfir á 40. mínútu þegar Kelechi Iheanacho kom Leicester yfir með skallamarki.

Hamrarnir voru ekki lengi að jafna metin því Pablo Fornals skoraði eftir sendingu Felipe Anderson.

Demarai Gray bætti upp fyrir mistök sín þegar hann skoraði sigurmarkið á 56. mínútu.

Með sigrinum er Leicester búið að minnka muninn í Liverpool á toppnum niður í 10 stig, en Liverpool á þó tvo leiki til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira