Martial og Rashford tryggðu United sigur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Markaskorarar United í kvöld
Markaskorarar United í kvöld vísir/getty

Manchester United vann tveggja marka sigur á Burnley í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Rétt fyrir hálfleikinn kom fyrsta mark leiksins, Anthony Martial skoraði það eftir varnarmistök hjá Charlie Taylor.

Í uppbótartíma seinni hálfleiks kom svo seinna mark United, Marcus Rashford skoraði það eftir skyndisókn United, lokatölur urðu 2-0.

Heilt yfir var sigur United nokkuð sanngjarn og fara þeir með sigrinum upp í fimmta sæti deildarinnar, stigi á eftir Chelsea í fjórða sætinu.

Jóhann Berg Guðmundsson kom inn af varamannabekknum um miðjan seinni hálfleik.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira