Viðskipti innlent

Landsbankinn og Arion innkalla endurskinsmerki vegna hættulegra efna

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Í tilkynningu sem Arion banki og Landsbankinn sendu frá sér eru viðskiptavinir beðnir afsökunar.
Í tilkynningu sem Arion banki og Landsbankinn sendu frá sér eru viðskiptavinir beðnir afsökunar. Landsbankinn
Landsbankinn og Arion banki hafa innkallað endurskinsmerki að beiðni Umhverfisstofnunar vegna þess að þau innihalda hættuleg efni í meiri styrk sen leyfilegt er. Foreldrar og forráðamenn barna sem fengu endurskinsmerkin að gjöf eru beðnir um að hætta notkun þeirra.

Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar.

Efnagreiningar sem UST lét gera á ýmsum endurskinsmerkjum leiddu í ljós að efnin kadmíum, bis(2-ethylhexyl), phthalate (DEHP) og keðjustutt klóruð paraffín (SCCP) mældust yfir leyfilegum mörkum.

Á meðal kynningarvara Arion banka voru sambærileg merki frá sama framleiðanda sem ekki voru send til efnagreiningar. Þegar niðurstöður lágu fyrir hafði Umhverfisstofnun samband við bankana og sameiginlegan framleiðanda þeirra, Trix vöruþróun. Öll fyrirtækin brugðust við með innköllun á merkjunum sem um ræðir.

Foreldrar og forráðamenn barna sem fengið hafa endurskinsmerkin afhent eru beðin um að hætta notkun vörunnar og skila þeim sem plasti í næstu endurvinnslustöð eða í næsta útibú bankans.

Efnagreiningarnar eru liður í samnorrænu eftirlitsverkefni um efnainnihald kynningarvara. Val Umhverfisstofnunar á rannsóknarefni miðaðist við aðila sem næðu til fólks um land allt en sérstaklega var horft til kynningarvara fyrir yngri kynslóðir.

Umhverfisstofnun fékk sýni af kynningarvörunum frá bönkunum og skimaði hluta varanna fyrir tilteknum áhættuþáttum. Skimunin var unnin með aðstoð starfsfólks Tollstjóra og tækjabúnaði í eigu þess embættis. Í kjölfar skimunarinnar voru valdar fjórar vörur sem sendar voru til efnagreininga.

Í tilkynningu frá bæði Arionbanka og Landsbankanum eru viðskiptavinir beðnir afsökunar á óþægindunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×