Innlent

Gjörgæslan gæti tekið mun fleiri

Ari Brynjólfsson og Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Greint var frá því í gær að á mánudaginn hefði aðgerð á sjö mánaða stúlku verið frestað og var foreldrum stúlkunnar tjáð að ástæðan væri plássleysi á gjörgæsludeild.
Greint var frá því í gær að á mánudaginn hefði aðgerð á sjö mánaða stúlku verið frestað og var foreldrum stúlkunnar tjáð að ástæðan væri plássleysi á gjörgæsludeild. Fréttablaðið/Vilhelm
Skortur á starfsfólki er ástæða fyrir plássleysi gjörgæsludeildar Landspítalans, segir deildarstjóri gjörgæslu við Hringbraut. Fresta þurfti tíu aðgerðum á spítalanum fyrstu þrjá mánuði ársins vegna plássleysisins.

Greint var frá því í gær að á mánudaginn hefði aðgerð á sjö mánaða stúlku verið frestað og var foreldrum stúlkunnar tjáð að ástæðan væri plássleysi á gjörgæsludeild. Aðgerðinni var frestað til loka mánaðarins og hvatti starfsfólk foreldrana til að skrifa heilbrigðisráðherra bréf vegna málsins.

Faðir stúlkunnar, Ásgeir Yngvi Ásgeirsson, sagði við Fréttablaðið að ekki væri við starfsfólk Landspítalans að sakast: „En að þurfa að fresta þessu [aðgerðinni] aftur vegna plássleysis á spítalanum, þetta er orðið mjög erfitt.“

„Málið snýst ekki um pláss í sjálfu sér, það eru rúm til staðar, þetta snýst um mönnun. Ég myndi telja að við gætum auðveldlega tekið níu sjúklinga til viðbótar á gjörgæsluna en við erum bara með opið fyrir sjö vegna mönnunar,“ segir Árni Már Haraldsson, deildarstjóri gjörgæslu við Hringbraut.

Er þá aðallega um að ræða skort á hjúkrunarfræðingum. „Það er fyrst og fremst ástæðan fyrir því að það er ekki hægt að gera fleiri aðgerðir.“

Skortur á hjúkrunarfræðingum hefur víðtæk áhrif á starfsemi Landspítala. Þó svo að fresta hafi þurft aðgerðum vegna skorts á hjúkrunarfræðingum á gjörgæslu, þá er birtingarmynd þessa vanda alvarlegust á bráðamóttöku.

„Viðunandi mönnun hjúkrunarfræðinga er grundvallarforsenda þess að Landspítali geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu,“ ítrekaði hjúkrunarráð Landspítala á dögunum. 


Tengdar fréttir

Undirbúa Sóllilju fyrir aðgerð í þriðja skiptið

Sjö mánaða gömul stúlka þarf að bíða eftir aðgerð á Landspítalanum vegna plássleysis á gjörgæsludeild. Ásgeir Yngvi Ásgeirsson, faðir stúlkunnar, segir ömurlegt að þurfa að undirbúa dóttur sína undir aðgerð í þriðja skiptið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×