Körfubolti

Hættir með Hauka í vor

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ívar hefur þjálfað Hauka í átta ár.
Ívar hefur þjálfað Hauka í átta ár. vísir/anton
Ívar Ásgrímsson hættir sem þjálfari karlaliðs Hauka í körfubolta eftir tímabilið. Hann staðfesti þetta í samtali við mbl.is.

Ívar hefur þjálfað Hauka síðan 2011. Undir hans stjórn komst liðið í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn 2016 og varð deildarmeistari 2018.

Haukar eru í 9. sæti Domino's deildarinnar með 16 stig, tveimur stigum frá 8. sætinu. Þeir mæta Þór Þ. á útivelli í kvöld og Stjörnunni á heimavelli á fimmtudaginn.

Ívar lét af störfum sem þjálfari kvennalandsliðsins undir lok síðasta árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×