Körfubolti

Körfuboltakvöld byrjaði á stórkostlegu myndbandi af Jonna í marki

Anton Ingi Leifsson skrifar
Teitur Örlygsson líkti Jonna við David de Gea.
Teitur Örlygsson líkti Jonna við David de Gea. vísir/skjáskot
Domino's Körfuboltakvöld byrjaði á óhefðbundinn hátt á föstudagskvöldið en þættinum hafði borist myndskeið frá góðvini þáttarins.

Þáttarstjórnandinn, Kjartan Atli Kjartansson, sagði í fyrstu innkomu þáttarins að borist hafi myndband af Jóni Halldóri Eðvaldssyni er hann stóð í marki í bikarleik með Víði úr Garði.

Víðir tapaði leiknum með þremur mörkum gegn einu en þrátt fyrir það sýndi Jón Halldór, eða Jonni eins og hann er oftast kallaður, góða takta í markinu hjá Víði. Hann segir að úrslitin hafi ráðist á „dómaraskandal“.

Myndbandið segir meira en þúsund orð og má svo sannarlega segja að sjón sé sögur ríkari en þetta þrælskemmtilega innslag má sjá í spilaranum hér að neðan.



Klippa: Körfuboltakvöld: Jonni í fótbolta



Fleiri fréttir

Sjá meira


×