Körfubolti

„Ég skil ekki vandamálið ef þetta er lausn“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Félagarnir fara yfir málin.
Félagarnir fara yfir málin. vísir/skjáskot
Framlengingin er einn vinsælasti liðurinn í Domino's Körfuboltakvöldi og á föstudagskvöldið var liðurinn að sjálfsögðu á sínum stað.

Kjartan Atli Kjartansson fór yfir umferðina en hann var með þá Kristin Friðriksson, Teit Örlygsson og Jón Halldór Eðvaldsson með sér í settinu.

Fyrsta umræðuefnið var hvort að KR væri komið til baka eftir sigurinn gegn Stjörnunni á föstudagskvöldið en sigurinn gaf mikið í toppbaráttunni fyrir KR.

„KR er klárlega komið til baka,“ sagði Teitur Örlygsson áður en Kristinn Friðriksson tók við: „Ég er ekki að sjá KR ná í úrslit. Það get ég ekki séð í minni kristalkúlu.“

Einnig var rætt um ákvörðun Jóhanns Ólafssonar að hætta með Grindavík en það var gefið út á dögunum. Rætt var um hvort að það væri gott eða slæmt fyrir Grindavík að gefa það út á þessm tímapunkti.

„Er ekki verið að segja að þjálfarinn hafi verið vandamálið,“ vildi Jón Halldór Eðvaldsson meina um tímasetninguna á tilkynningunni frá Grindavík. „Ég skil ekki vandamálið ef þetta er lausn,“ bætti Kristinn Friðiksson við.

Fjörugar umræður um fimm skemmtileg umræðuefni má sjá hér að neðan.

Klippa: Körfuboltakvöld: Framlenging





Fleiri fréttir

Sjá meira


×