Körfubolti

Reykjavíkurslagurinn í beinni á Stöð 2 Sport í kvöld

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jón Arnór Stefánsson og félagar sækja ÍR-inga heim.
Jón Arnór Stefánsson og félagar sækja ÍR-inga heim. vísir/bára
Stöð 2 Sport er búið að skipta um sjónvarpsleik í Domino´s-deild karla í körfubolta í kvöld en í stað viðureignar Stjörnunnar og Grindavíkur verður sýndur Reykjavíkurslagur ÍR og KR.

Bæði KR og ÍR þurfa sárlega á stigunum að halda en ÍR getur tryggt sér sæti í úrslitakeppninni með sigri á meisturum síðustu fimm ára eftir að Þór Þorlákshöfn valtaði yfir Hauka í gærkvöldi.

KR-ingar geta enn náð heimaleikjarétt fyrir fyrstu umferð úrslitakeppninnar en þá verða þeir að leggja Breiðhyltinga á útivelli í kvöld sem verður ærið verkefni. Heimaleikjarétturinn mun svo sannarlega skipta máli þetta vorið.

Þegar að liðin mættust síðast vann KR tveggja stiga sigur í háspennuleik í DHL-höllinni og má því búast við spennandi leik í kvöld þar sem að mikið er undir.

Leikurinn hefst klukkan 19.15 en útsendingin hefst klukkan 19.00 og Domino´s-Körfuboltakvöld gerir svo umferðina upp klukkan 21.15, allt í beinni á Stöð 2 Sport HD.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×