Búinn að fara vel yfir þetta og spáir Liverpool titlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2019 14:00 Sadio Mane hefur verið að gera góða hluti í framlínu Liverpool að undanföru og er búinn að taka upp hanskann fyrir Mo Salah. Getty/Simon Stacpoole
Átta leikir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni og því 24 stig eftir í pottinum. Manchester City er með eins stigs forskot á Liverpool en mikið á enn eftir að gerast. Gary McAllister, fyrrum leikmaður Liverpool og Leeds, hefur farið vel yfir síðustu átta leiki Manchester City og Liverpool. Hann hefur reiknað út hvaða lið verður enskur meistari í vor. Flestir spá því eflaust að Liverpool sé búið að klúðra tækifærinu sínu með því að missa niður tíu stiga forystu en það er ekki öll von út enn. Eitt stig er enginn munur og 24 stiga pottur bíður upp á margt."I've looked at both run-ins and done a predictor..." Who is Gary McAllister expecting to win the Premier League title? https://t.co/yISj9g9QPGpic.twitter.com/vjx6XF7w5d — Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) March 12, 2019McAllister spilaði í tvö tímabil með Liverpool og hefur auðvitað taugar til Anfield en hann sagði Sky Sports frá „útreikningum“ sínum. „Ég hef skoðað vel leiki liðanna og hef spáð fyrir úrslitin í þeim. Ég hélt að ég myndi enda með Manchester City í fyrsta sætinu,“ sagði Gary McAllister við Sky Sports. „Þegar ég tók stigin hins vegar saman þá endaði Liverpool á toppnum með einu stigi meira en City,“ sagði McAllister. McAllister viðurkennir að það sé mikil pressa á Liverpool að enda 29 ára bið eftir enska meistaratitlinum en leggur áherslu á það að liðin verða bara að einbeita sér að einum leik í einu. „Það er mikil pressa og hún fer ekkert fram hjá leikmönnunum þrátt fyrir að þeir segi annað. Það er mikill hávaði fyrir utan liðið vegna þess að Liverpool hefur ekki unnið titilinn svona lengi. Þeir verða bara að halda einbeitingunni á næsta leik og ekki horfa of langt,“ sagði McAllister. Gary McAllister spilaði með Liverpool frá 2000 til 2002 en hann kom til félagsins 35 ára gamall eftir að hafa spilað lengstum með Leicester City (1985-1990) og Leeds United (1990-1996). Liverpool var búið að bíða í áratug eftir enska meistaratitlinum þegar McAllister mætti á svæðið en hann vann bikarþrennuna með liðinu tímabilið 2000-01 eða enska bikarinn, enska deildabikarinn og UEFA-bikarinn. Liverpool vann alls fimm titla árið 2001. McAllister hefur reyndar orðið oftar enskur meistari en Liverpool á síðustu 29 árum því hann vann ensku deildina með Leeds United tímabilið 1991-92.
Enski boltinn Mest lesið Stefnir á heimsmet og segist aldrei hafa verið í betra formi Sport „Ég eiginlega bara trúi þessu ekki“ Fótbolti Ragnhildur endaði önnur eftir bráðabana Golf De Bruyne og Højlund skoruðu gegn Albertslausu Fiorentina Fótbolti Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Íslenski boltinn Carvalho rændi stigi af Chelsea Fótbolti Mark Sveindísar duggði skammt Fótbolti Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik Handbolti Fyrsta mark Ísaks í efstu deild Þýskalands Fótbolti Fjórir markaskorarar er Bayern valtaði yfir Hamburger Fótbolti Fleiri fréttir Sigur í fyrsta leik Andra í enska boltanum Nýi maðurinn hetja Newcastle og skrautlegt sjálfsmark Leeds Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Zubimendi með tvö í frábærum sigri Ekki keyptur til að gera það sama og Ederson Skiptir til Chelsea frá félagi með sömu eigendur Staðfestir að Bayindir verði í markinu gegn Man City Delap gæti verið frá fram í desember Grealish valinn leikmaður mánaðarins í fyrsta sinn Viðhafnarútsending af Doc Zone: Fimm leikir í enska og lokaumferðin í Lengjunni „Báðir með svona Manchester United æxli í heilanum“ Slot í skýjunum eftir ákvörðun þjálfara Svía Er hluti af leikmannahópnum þrátt fyrir að vera í fangelsi Um hnífsárásina sem breytti lífi hans: „Hluti af mér er horfinn“ Engin stig dregin af Chelsea Tyrkneska félagið staðfestir komu Onana Þjálfara kvennaliðs Sheffield United vikið tímabundið frá störfum Chelsea ákært fyrir 74 brot í eigendatíð Abramovich Fertugur Fabianski beðinn um að mæta aftur Ótrúleg breyting á skrautlegum stjóra: Misst fjörutíu kíló á hálfu ári Coote ákærður fyrir að framleiða barnaníðsefni Man. Utd er ekki eins lélegt og flestir halda Ange tekinn við Forest: „Hefur sýnt og sannað að hann geti unnið titla“ Liverpool hyggst fá Guéhi frítt Postecoglou að taka við Forest Nuno rekinn frá Forest Segir að treyja Man United sé þung byrði Man City og úrvalsdeildin náð sáttum varðandi auglýsingasamninga „Tottenham Hotspur er ekki til sölu“ Rúrik segir að Füllkrug vilji ekki láta laga tennurnar í sér Sjá meira