Andre Gray tryggði Watford sæti í undanúrslitunum

Dagur Lárusson skrifar
Gray skorar sigurmarkið.
Gray skorar sigurmarkið. Vísir/Getty
Andre Gray tryggði Watford sæti í undanúrslitum FA-bikarsins í dag þegar hann skoraði sigurmark liðsins í 2-1 sigri á Crystal Palace.

 

Það voru heimamenn í Watford sem að byrjuðu leikinn mikið betur og sóttu af miklum krafti fyrstu mínúturnar. Sá mikli sóknarþungi skilaði sér á 27. mínútu þegar Etienne Capoue skoraði eftir vandræðagang í teig Crystal Palace og var staðan 1-0 í hálfleiknum.

 

Liðsmenn Crystal Palace mættu ákveðnari til leiks í seinni hálfleikinn og áttu sínar eigin sóknir fyrstu mínúturnar og sköpuðu sér hættuleg færi. Það var síðan á 62. mínútu þar sem Michy Batshuayi vann boltann á hættulegum stað, fór inná teig og lagði boltann laglega framhjá Gomes í marki Watford og jafnaði metin, staðan 1-1.

 

Eftir þetta mark sóttu bæði lið og áttu sín færi og gat leikurinn endað vel fyrir bæði lið. Það var hinsvegar varamaðurinn Andre Gray sem skoraði sigurmark leiksins fyrir Watford á 79. mínútu.

 

Watford mun því, eins og fyrr segir, spila í undanúrslitum bikarins í næsta mánuði og munu þar geta mætt t.d. báðum Manchester liðunum.

 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira