Körfubolti

Elvar Már oftast valinn í lið umferðarinnar í Domino's Körfuboltakvöldi í vetur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elvar Már Friðriksson.
Elvar Már Friðriksson. Vísir/Bára
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson var sá leikmaður sem komst oftast í Geysir úrvalslið umferðarinnar í Domino's Körfuboltakvöldi.

Elvar Már var frábær með Njarðvíkurliðinu í vetur og komst sex sinnum í lið umferðarinnar. Næstur á eftir honum var Þórsarinn Nikolas Tomsick sem var valinn fimm sinnum í liðið.

Elvar Már Friðriksson var með 23,1 stig og 5,3 stoðsendingar að meðaltali í þeim sextán leikjum sem hann spilaði með Njarðvíkurliðinu.

Nikolas Tomsick var aftur á móti með 22,9 stig og 7,5 stoðsendingar að meðaltali í leik en hann lék alla 22 leiki Þórsliðsins í vetur.

Fimm leikmenn náðu því að komast fjórum sinnum í lið umferðarinnar og koma þeir úr fimm mismunandi félögum. Það eru KR-ingurinn Julian Boyd, Brynjar Þór Björnsson hjá Tindastóli, Keflvíkingurinn Gunnar Ólafsson, Haukamaðurinn Hilmar Smári Henningsson og ÍR-ingurinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson.

Hilmar Smári er aðeins átján ára gamall en hann var með 14,0 stig og 3,4 stoðsendingar að meðaltali í 22 leikjum með Haukum í vetur.

Baldur Ragnarsson, þjálfari Þórs úr Þorlákshöfn, var oftast valinn þjálfari umferðarinnar eða fjórum sinnum. Allir tólf þjálfarar deildarinnar komust að minnsta kosti einu sinni í liðið.

Domino's Körfuboltakvöld gerir upp lokaumferðina í Domino´s deildinni í kvöld og um leið seinni hluta mótsins. Þáttur kvöldsins hefst klukkan 21.15.

Hér fyrir neðan má sjá hvaða leikmenn og þjálfarar sköruðu oftast fram úr í umferðunum tuttugu og tveimur.



Leikmenn sem voru oftast valdir í Geysir úrvalslið umferða 1-22:

6 sinnum

Elvar Már Friðriksson – Njarðvík

5 sinnum

Nikolas Tomsick - Þór Þ

4 sinnum

Julian Boyd - KR

Brynjar Þór Björnsson - Tindastóll

Gunnar Ólafsson - Keflavík

Hilmar Smári Henningsson - Haukar

Sigurður Gunnar Þorsteinsson – ÍR

3 sinum

Maciek Baginski - Njarðvík

Michael Craion - Keflavík

Mario Matasovic - Njarðvík

Jón Arnór Stefánsson - KR

Halldór Garðar Hermannsson - Þór Þ

Danero Thomas - Tindastóll

Sigtryggur Arnar Björnsson - Grindavík

Brandon Rozzell – Stjarnan

Ragnar Ágúst Nathanaelson – Valur

2 sinnum

Pétur Rúnar Birgisson – Tindastóll

Antti Kanervo – Stjarnan

PJ Alowayoa – Tindastóll

Jordy Kuiper - Grindavík

Collin Pryor - Stjarnan

Eyjólfur Ásberg Halldórsson - Skallagrímur

Gerald Robinson - ÍR

Hörður Axel Vilhjálmsson - Keflavík

Ægir Þór Steinarsson - Stjarnan

Haukur Óskarsson - Haukar

Kendall Lamont - Valur

Hlynur Bæringsson - Stjarnan

Kristófer Acox - KR

Midaugas Kacinas - Keflavík

Mike Di nunno - KR



Þjálfarar sem voru oftast valdir í Geysir Úrvalslið umferða 1-22:

 

4 sinnum

Baldur Þór Ragnarsson - Þór Þ

 

3 sinnum

Ingi Þór Steinþórsson - KR

Ívar Ásgrímsson - Haukar

Israel Martin - Tindastóll

 

2 sinnum

Sverrir Þór Sverrisson - Keflavík

 

1 sinni

Jóhann Þór Ólafsson - Grindavík

Finnur Jónsson - Skallagrímur

Pétur Ingvarsson - Breiðablik

Ágúst Björgvinsson - Valur

Arnar Guðjónsson - Stjarnan

Einar Árni Jóhannsson – Njarðvík

Borche Ilievski - ÍR




Fleiri fréttir

Sjá meira


×