Íslenski boltinn

Sævar Atli tryggði Leikni jafntefli í sex marka leik

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Leiknismenn fagna
Leiknismenn fagna Vísir/Stefán
Sævar Atli Magnússon bjargaði stigi fyrir Leikni í sex marka jafntefli við Stjörnuna í Lengjubikarnum í kvöld.

Vuk Oskar Dimitrijevic kom heimamönnum í Leikni yfir strax á fyrstu mínútu leiksins en Stjarnan jafnaði fjórum mínútum seinna.

Stjarnan náði svo öðru marki á 21. mínútu og fór með 2-1 forystu inn í leikhléið.

Stjörnumenn misstu mann af velli snemma í seinni hálfleik og það tók Leikni aðeins tíu mínútur að nýta sér liðsmuninn og jafna með marki frá Ingólfi Sigurðssyni.

Hilmar Árni Halldórsson skoraði þriðja mark Stjörnunnar á 75. mínútu en Sævar Atli tryggði Leikni stigið með marki á lokamínútum leiksins.

Eftir fimm leiki er Stjarnan því með sjö stig í riðli 1 og Leiknir fjögur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×