Enski boltinn

Carrick: Ole með sömu eiginleika og Sir Alex

Dagur Lárusson skrifar
Ole Gunnar og Carrick.
Ole Gunnar og Carrick. vísir/getty
Michael Carrick, aðstoðarmaður Ole Gunnar, segir að Ole sé með sömu eiginleika sem stjóri og Sir Alex var með á sínum tíma.

 

Michael Carrick og Ole Gunnar spiluðu saman undir stjórn Sir Alex á síðasta áratugi og segir sá fyrrnefndi að Ole sýni mikið af sömu eiginleikum sem gerðu Sir Alex að frábærum stjóra.

 

„Þeir eru með sömu meginreglur, ræður Ole fyrir leiki snúast alltaf að mestu leyti um að leggja meira á sig heldur en hitt liðið, rétt eins og Sir Alex sagði yfirleitt.“

 

„Hann er að gera þetta allt rétt, hann hefur farið aftur og fundið það sem gerir Manchester United að besta félagi í heimi: spennandi og jákvæður fótbolti þar sem teknar eru áhættur og allt gert til þess að vinna.“

 

„Það að leggja harðar að sér er það sem United hefur alltaf átt að snúast um og snérist alltaf um undir Sir Alex. Það hefur aldrei snúist um að við séum betra en hitt liðið, við einfaldlega þurfum bara að leggja harðar að okkur heldur en þeir.“

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×