Íslenski boltinn

Víkingur vann á Ásvöllum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Víkingar fögnuðu sigri í dag
Víkingar fögnuðu sigri í dag vísir/ernir
Haukar og Víkingur mættust í síðasta leik riðils 4 í A deild Lengjubikars karla að Ásvöllum í dag.

Víkingur vann leikinn með þremur mörkum gegn einu frá Haukum.

Gestirnir úr Fossvoginum byrjuðu af krafti og voru búnir að setja tvö mörk áður en 10 mínútur voru liðnar af leiknum.



Haukar löguðu stöðuna fyrir hálfleik og staðan 2-1 þegar flautað var til hálfleiks. Í seinni hálfleik skoruðu Víkingar eitt mark og 3-1 varð niðurstaðan.

Víkingur klárar því riðilinn í 4. sæti með sex stig en Haukar sitja á botninum með eitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×