Íslenski boltinn

Skagamenn klára riðilinn með fullt hús

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Skagamenn hafa tekið undirbúningstímabilið með stormi
Skagamenn hafa tekið undirbúningstímabilið með stormi Mynd/S2 Sport
ÍA klárar riðlakeppni Lengjubikarsins með fullt hús stiga eftir sigur á Magna í lokaleik riðils 1 á Akureyri í kvöld.

Einar Logi Einarsson kom Skagamönnum yfir á 21. mínútu leiksins og var það eina mark fyrri hálfleiks.

Gestirnir frá Akranesi byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti með marki frá Arnóri Snæ Guðmundssyni.

Gonzalo Zamorano og Bjarki Steinn Bjarkason bættu svo sínu markinu við fyrir ÍA. Í uppbótartíma náði Lars Óli Jessen inn sárabótamarki fyrir Magna sem dugði þó lítið.

ÍA vinnur því riðilinn örugglega með 15 stig úr fimm leikjum. Magni endar hins vegar á botni riðilsins.

ÍA mun spila við KA í undanúrslitum Lengjubikarsins í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×