Innlent

Ók á þrjár kyrrstæðar bifreiðar

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Klukkan hálf tólf í gærkvöldi var Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um umferðaróhapp í hverfi 108 en ökumaður hafði þá ekið á 2-3 kyrrstæðar bifreiðar. Ökumaðurinn sem olli tjóninu var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn málsins.
Klukkan hálf tólf í gærkvöldi var Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um umferðaróhapp í hverfi 108 en ökumaður hafði þá ekið á 2-3 kyrrstæðar bifreiðar. Ökumaðurinn sem olli tjóninu var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn málsins. vísir/vilhelm
Klukkan hálf tólf í gærkvöldi var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um umferðaróhapp í hverfi 108 en ökumaður hafði þá ekið á 2-3 kyrrstæðar bifreiðar. Ökumaðurinn sem olli tjóninu var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn málsins.

Þetta kom fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem hafði í nógu að snúast í nótt. Á meðal verkefna hennar voru fjölmörg mál sem komu upp er varðar akstur undir áhrifum vímuefna. Þá var nokkuð um umferðaróhöpp og þjófnað.

Laust fyrir klukkan sex í gær var lögreglu tilkynnt um búðarhnupl í verslun í hverfi 108. Meintur þjófur var handtekinn og vistaður í fangageymslu á meðan málið var rannsakað. Illa gekk að fá túlk til að hægt væri að ræða við hinn meinta geranda en hann var látinn laus að lokinni skýrslutöku.

Klukkan korter yfir sex var tilkynnt um nakinn mann í salernisaðstöðunni í Reykjavíkurflugvelli. Maðurinn er heimilislaus og af erlendu bergi brotinn. Hann hafði vanið komur sínar á flugvöllinn og notað almenningssalernið til að þrífa sig. Manninum var vísað burt.

Laust eftir klukkan hálf þrjú í nótt var maður í annarlegu ástandi handtekinn við veitingahús í miðbænum. Hann hafði ráðist á dyravörð og var í átökum þegar lögreglan mætti á staðinn.

Á tólfta tímanum í gærkvöldi var lögreglu tilkynnt um slys á heimili í hverfi 113 sem kom til þegar kona var í samkvæmi og notaði hníf til að opna flösku. Hnífurinn rann til í hendi konunnar og henni blæddi mjög. Sjúkraflutningamenn komu á vettvang, bjuggu um sárið og fluttu konuna til aðhlynningar á slysadeild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×