Innlent

Eldur kom upp í þvottahúsi Icelandair hótela

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Enginn var í þvottahúsinu þegar slökkviliðið mætti á svæðið.
Enginn var í þvottahúsinu þegar slökkviliðið mætti á svæðið. Vísir/vilhelm
Eldur kom upp í þurrkara í þvottahúsi Icelandair hótelsins í Ármúla á sjötta tímanum í morgun að því er mbl.is greinir frá.

Enginn var í þvottahúsinu þegar eldurinn kom upp en þurrkarinn er gjörónýtur og reykræsta þurfti þvottahúsið.

Slökkvistarf tók um það bil klukkustund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×