Fótbolti

Ari skoraði glæsimark

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ari Freyr og félagar eru fallnir úr belgísku úrvalsdeildinni
Ari Freyr og félagar eru fallnir úr belgísku úrvalsdeildinni vísir/getty
Ari Freyr Skúlason fer inn í landsleikjahléið með sigur og mark á bakinu en hann skoraði þriðja mark Lokeren í sigri á Cercle Brugge.

Síðasta umferð belgísku úrvalsdeildarinnar fór fram í dag og var Lokeren nú þegar fallið sama hver úrslitin yrðu úr þessum leik.

Eftir um hálftíma leik opnaðist vörn Brugge og Lokeren setti þrjú mörk á rúmum tíu mínútum.



Ari Freyr skoraði það síðasta og var það af laglegri gerðinni, boltinn féll fyrir hann rétt fyrir utan teig, skotið viðstöðulaust og small í netinu.

Brugge náði ekki að koma með almennilega endurkomu en náðu einu marki í seinni hálfleik og lokatölur 3-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×