Halda hvort öðru á tánum Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 4. mars 2019 13:00 Ýmis verk úr smiðju StudioStudio síðustu misseri. Verk Rögnu Róbertsdóttur gerð skil í fallegu bókverki og bókarkápa skáldsögu Hallgríms Helgasonar þótti frumleg. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Guðmundsdóttir hjá StudioStudio hafa hannað nýtt útlit fyrir HönnunarMars í ár. Þau hafa vakið mikla eftirtekt fyrir verk sín undanfarið. Þau sérhæfa sig í bókahönnun, ímyndarvinnu, týpógrafíu, umbroti og ýmsu ritstjórnarefni og vinna þvert á geira, bæði fyrir listamenn og fyrirtæki. Arnar er grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands og kennir þar sem stundakennari. Birna er einnig grafískur hönnuður frá Listaháskólanum og er einnig með meistaragráðu í bókahönnun frá Reading-háskóla í Bretlandi. Birna er fagstjóri í grafískri hönnun í hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Þau starfa saman í Gimli, fallegu turnhúsi á Bernhöftstorfunni við Lækjargötu.Sextíu kíló af sólskini kápan.Mynd/Studiostudio„Við höfum unnið saman í fimm ár. Við kynntumst í gegnum fagið og sameiginlega vini,“ segir Birna. „Okkur finnst gott að vinna saman því við höfum svipaða sýn,“ segir hún. „Við höfum misjafna styrkleika og hífum hvort annað upp,“ segir Arnar. „Já, það mætti segja að við höldum hvort öðru á tánum,“ segir Birna. Eitt af nýlegum verkum Arnars og Birnu er bókarkápa, á Sextíu kíló af sólskini, eftir Hallgrím Helgason. Bókarkápan var af álitsgjöfum Fréttablaðsins valin sú besta í ár og vakti almenna eftirtekt fyrir vandað útlit sem hæfði efni bókarinnar vel.Mynd/StudiostudioFundur í Hrísey Hugmyndavinnan hófst í Hrísey. „Það sem virkaði vel í þessu ferli er hvað samtalið við hann Hallgrím var gott,“ segir Arnar. „Við vorum í sumarfríi norður í landi þegar Hallgrímur hafði samband við okkur vegna bókarinnar og var þá sjálfur á leiðinni í frí norður, við hittumst í Hrísey og áttum þar samtal um bókina og innihald hennar,“ segir Arnar. „Hann var búinn að sanka að sér myndrænum tilvísunum sem honum þótti viðeigandi. Til dæmis auglýsingum frá þessum tíma, gömlum eldspýtustokkum og slíku,“ segir Birna. Verk þeirra Arnars og Birnu eru fjölbreytt og ólík innbyrðis þótt eflaust megi greina þráð. Veigamikil bók um verk Rögnu Róbertsdóttur er þar á meðal. „Það er allt öðruvísi verkefni með erlendum útgefanda. Það var stærra samtal í gangi, maður þurfti að gera sér ferð á meginlandið. Lengra en út í Hrísey,“ segir Birna og hlær. „En það var eins með hana. Við áttum gott samtal við hana og fengum aðgang að öllum hennar verkum,“ segir Arnar. Birna tekur undir og segir samtalið mikilvægt. „Já, það er vænlegast til vinnings. Í samtalinu finnur maður líka hvort maður er rétti aðilinn í verkið. Því þetta er alltaf persónulegt og maður gefur sig allan í þetta. Þegar maður er búinn að skila af sér verki þá er stundum allur vindur úr manni,“ segir Birna.Mynd/StudiostudioJákvæð þróun Þeim fannst áhugavert að takast á við að hanna nýtt útlit fyrir HönnunarMars. Í hönnuninni tóku þau tillit til þess að hátíðin er bæði fyrir fagfólk og áhugafólk um hönnun. „Þetta er þannig verkefni að það er eðlilegt að það sé rótering á þessu. Við höldum samt í ákveðna þræði sem er búið að leggja undanfarin 10 ár. Þetta snýst ekki endilega um að finna upp hjólið heldur byggja ofan á þá þekkingu sem er komin. „Já, það er mikilvægt að fólk finni fyrir því að þetta sé hátíð sem er alltaf í þróun. Og það þarf að tala bæði til hönnuða og líka þeirra sem hafa áhuga á hönnun, eru forvitnir og áhugasamir,“ segir Birna. Þau eru sammála um að hönnun hafi sífellt meira vægi í íslenskri menningu. „Það er mjög jákvæð þróun í gangi. Fólk sér mikilvægið og sérstöðuna. Frá því að ég fór að velta hönnun fyrir mér finnst mér landslagið hafa breyst,“ segir Birna. „Margir eru að gera virkilega spennandi hluti,“ segir Arnar. „Það er til dæmis mikið af sjálfsprottnum verkefnum og mikil flóra. Mjög fjölbreytt stemming,“ segir Birna. Og hefur orðstírinn aukist? Út á við? „Þegar við erum að vinna erlend verkefni líður manni stundum eins og það sé verið að sækja vatnið yfir lækinn. En kannski höfum við eitthvað annað fram að færa sem skiptir máli. Einhverja aðra sýn,“ segir Arnar.
Birtist í Fréttablaðinu HönnunarMars Menning Mest lesið Springsteen aflýsir nokkrum tónleikum af heilsufarsástæðum Lífið Forsetaáskorunin: Hefur aldrei lent í slagsmálum Lífið Kosningalag: Örþrifaráð eða snilldarútspil? Lífið Balti hélt að Pálmi myndi aldrei mæta Bíó og sjónvarp Af vængjum fram: Ekki viss um að hann myndi þekkja lyktina af hassi Lífið Binni Glee hrundi til jarðar í Köben Lífið Skönnuðu Aldísi frá toppi til táar og gleymdu ekki tönnunum Lífið Brauðtertuveisla í brauðtertusamkeppni á Selfossi Lífið Millie Bobby Brown og sonur Bon Jovi orðin hjón Lífið Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Tónlist Fleiri fréttir Alltaf að stela fötum af kærastanum „Allt frá ofnæmistöflum yfir í míní gjaldeyrissjóð“ Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Alltaf með jager skot í töskunni Fá í fyrsta sinn að klæðast strigaskóm „Þegar manni líður vel í eigin skinni skín það í gegn“ „Stútfull og við það að springa en hefur aldrei klikkað“ 23 ára og með sína eigin förðunarlínu Laufey skein skært á Met Gala Best klæddu stjörnurnar á Met Gala „Elska hraðann, pressuna og stressið“ Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Alltaf með naglaþjöl en gleymir stundum lyklunum Innsýn í fatahönnun framtíðarinnar Lófaklapp og litagleði á tískusýningu útskriftarnema Strangheiðarleg dreifbýlistútta og lopapeysan í uppáhaldi „Elska að hafa skipulagt kaos“ „Spyr mig oft hvort öll þessi vinna sé þess virði“ Listræn súkkulaðiupplifun og girnilegt smakk Menningarlífið iðar og HönnunarMars hefst á morgun Hefur hannað fyrir Miley Cyrus og Erykah Badu Íslensk skartgripahönnun á besta stað í New York Starfaði fyrir pólska herinn og sýnir nú skartgripi á Garðatorgi Kemur beint frá París með vistvæna tískustrauma „Frá naglalakki hjá ömmu í iðnaðarmann í skítugum fötum“ Myndavél frá afa algjör fjársjóður „Það mikilvægasta er að vera trúr sjálfum sér“ Munnskolið mikilvægt í förðunarstarfinu „Sjálfstraustið er besti fylgihluturinn“ Sjá meira