Handbolti

Bjarki Már og félagar enn með fullt hús stiga

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Bjarki Már Elísson.
Bjarki Már Elísson. vísir/getty
Bjarki Már Elísson og félagar í Fuchse Berlin eru í toppmálum í EHF bikarnum í handbolta en liðið er búið að vinna alla fjóra leiki sína til þessa og trónir á toppi A-riðils.

Í dag höfðu Berlínarrefirnir betur gegn spænska úrvalsdeildarliðinu Logroño La Rioja með tveimur mörkum, 29-27 eftir að hafa verið einu marki undir í leikhléi, 13-14.

Bjarki Már skoraði eitt mark í leiknum en Hans Lindberg var markahæstur í liði Fuchse Berlin með átta mörk. Fabian Wiede kom næstur með sjö mörk. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×