Viðskipti erlent

Kyli­e Jenner orðin yngsti „sjálf­skapaði“ milljarða­mæringurinn

Birgir Olgeirsson skrifar
Kylie Jenner er aðeins 21 árs og auðæfi hennar metin á einn milljarð dala.
Kylie Jenner er aðeins 21 árs og auðæfi hennar metin á einn milljarð dala. Vísir/Getty
Bandaríska samfélagsmiðlastjarnan Kylie Jenner hefur náð því að verða yngsti sjálfskapaði milljarðamæringur sögunnar, að mati bandaríska tímaritsins Forbes.

Jenner er aðeins 21 árs gömul og hefur auðgast mikið á snyrtivörumerkjalínu sinni Kylie Cosmetic. Forbes birti lista sinn í dag yfir ríkasta fólk heimsins en þar náði Jenner að velta stofnanda Facebook, Mark Zuckerberg, úr sessi sem yngsti sjálfskapaði milljarðamæringurinn. Zuckerberg náði því marki þegar hann var 23 ára gamall.

Auðæfi Jenner eru nú metin á einn milljarð dollara, eða því sem nemur um 120 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag. Kylie Cosmetic skrifaði undir samning við Ulta Beauty sem jók virði fyrirtækisins en það er metið á 900 milljónir dollara og að fullu í eign Kylie Jenner.

Metur Forbes það svo að tekjurnar af fyrirtækinu hafi hjálpað henni að ná þessari stöðu, að vera metin á einn milljarð dollara.

Fjölmiðillinn Bloomberg nefndi Jenner einnig yngsta sjálfskapaða milljarðamæring heimsins.

Forbes greindi frá því í fyrra að Jenner stefndi hraðbyri á að verða yngsti sjálfskapaði milljarðamæringur sögunnar, en þá var auðæfi hennar metin á 900 milljónir dollara og hún aðeins tvítug að aldri.

Var Forbes gagnrýnt fyrir að kalla Jenner „sjálfskapaðan“ milljarðamæring því hún hefði sannarlega notið góðs af því að tilheyra Kardashian-fjölskyldunni sem er stórt viðskiptaveldi og þannig hafi Jenner fengið forskot á aðra.

Jenner hefur auðgast mjög á snyrtivörustórveldi sínu Kylie Cosmetics.Vísir/Getty
Var umræðan að miklu leyti byggð á tísti orðabókarinnar Dictionary.com, sem birtist í kjölfar umfjöllunar Forbes-tímaritsins í fyrra um hin miklu auðæfi Jenner. Orðabókin tekur gjarnan orð, sem hafa verið í deiglunni, og skýrir þau á Twitter-reikningi sínum en Dictionary.com notaði tækifærið í fyrra og birti skilgreininguna á „sjálfskapaður“, eða „self-made“ á ensku.

Skilgreiningin hljóðar svo: „Sjálfskapaður merkir að hafa náð árangri í lífinu án hjálpar“ og notar orðið svo í setningu: „Forbes segir að Kylie Jenner sé sjálfsköpuð kona“. Margir töldu sig hafa lesið milli línanna og saka orðabókina um að ýja að því að Jenner sé alls ekki sjálfskapaður milljónamæringur.

Orðabókin birti aftur tíst í dag þar sem skýringin á orðinu „sjálfskapaður“ var árétt og tekið fram að það eigi við einhvern sem hefur náð árangri í lífinu án aðstoðar.

Forbes tekur fram að það sé þeirra mat að sá sem telst sjálfskapaður sé einhver sem hefur byggt upp fyrirtæki eða auðgast mjög á eigin spýtur en ekki einhver sem hefur fengið auðæfi í arf.

Hvað sem því líður þá hefur Jenner nýtt þau tækifæri sem henni bjóðast vegna velgengni fjölskyldu hennar afar vel.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×