Sport

Darren Till lemur á sjónvarpsstjörnunni Piers Morgan

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Darren Till er ekki vel við Piers Morgan.
Darren Till er ekki vel við Piers Morgan. vísir/getty
Það er oft stuð á samfélagsmiðlinum Twitter og nú er UFC-kappinn Darren Till farinn að lemja á sjónvarpsstjörnunni Piers Morgan á miðlinum.

Till tókst að fara í taugarnar á Morgan með þeim afleiðingum að Morgan „blokkaði“ Till á Twitter. Í kjölfarið fór Till að hrauna yfir Morgan sem síðan opnaði aftur á Till og byrjaði að skylmast við hann.

Í millitíðinni var Till byrjaður að láta Morgan heyra það á Instagram en bardaginn virðist ætla að halda áfram á Twitter. Morgan hefur lýst yfir hrifningu sinni af UFC-kappanum en það var of seint.

Till mun keppa á sama bardagakvöldi og Gunnar Nelson í London þann 16. mars og spurning hvort Morgan láti sjá sig?

































MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×