Enski boltinn

Derby mistókst að komast í umspilssæti

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Lampard tapaði í kvöld
Lampard tapaði í kvöld vísir/getty
Lærisveinar Frank Lampard í Derby töpuðu fyrir Millwall í ensku B-deildinni í kvöld eftir fjóra leiki í röð án taps.

Jed Wallace kom gestunum í Millwall yfir á 72. mínútu leiksins með fyrsta skoti leiksins sem hitti á markrammann. Eftir lélega aukaspyrnu Derby fór Millwall í skyndisókn, Shane Ferguson átti sendingu inn á Jed Wallace sem kláraði með vinstri fæti í marknetið.

Í uppbótartíma leiksins varði Jordan Archer sitt fyrsta skot í marki gestanna og kom í veg fyrir að Derby stæli stigi.

Sigurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir Millwall sem er nú komið fimm stigum frá fallsæti. Derby mistókst hins vegar að komast aftur í umspilssæti og situr sem fastast í sjöunda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×