Fótbolti

Stuðningsmaður Man. City var laminn inn á vellinum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stuðningsmenn Schalke á leiknum gegn City.
Stuðningsmenn Schalke á leiknum gegn City. vísir/getty
Ástand stuðningsmanns Man. City, sem varð fyrir líkamsárás eftir leik Schalke og City, er enn mjög slæmt en hann hlaut alvarlega höfuðáverka.

Lögreglan í Þýskalandi hefur staðfest að hann lenti í átökum við tvo stuðningsmenn Schalke inn á leikvanginum. Hann var kýldur niður og er höfuðið lenti í steypunni þá varð hann fyrir miklum áverkum á höfuðkúpu og heila.

Stuðningsmaðurinn er enn í lífshættu og framhaldið lítur ekki vel út. Starfsmenn frá Man. City eru fjölskyldu mannsins enn innan handar í Þýskalandi.

Þýska lögreglan er enn að vinna í málinu og hefur hvatt vitni að árásinni til þess að stíga fram.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×