Innlent

Spá umhleypingum næstu daga

Birgir Olgeirsson skrifar
Hvasst á köflum, vætusamt og milt.
Hvasst á köflum, vætusamt og milt. Vísir/Vilhelm
Veðurstofa Íslands spáir umhleypingum næstu dag, hvasst á köflum, vætusamt og milt.

Vaxandi austanátt og fer að rigna í dag, talsverð úrkoma á Austfjörðum og Suðausturlandi. Snýst í hvassa sunnanátt síðdegis og í kvöld. Hiti 3 til 10 stig.

Áfram hvasst og rigning á morgun, suðvestan 18-25 m/s síðdegis og rigning eða slydda, einkum sunnan- og vestanlands, en él annað kvöld. Kólnandi veður í bili.

Á sunnudag og mánudag er útlit fyrir stífa suðaustanátt, rigningu með köflum og milt veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×