Innlent

Eldur í ruslageymslu í Ljósheimum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þessi ruslatunna fór illa út úr eldsvoðanum.
Þessi ruslatunna fór illa út úr eldsvoðanum. Vísir/Egill
Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um eld í ruslageymslu í fjölbýlishúsi við Ljósheima í Reykjavík á þriðja tímanum í dag. Lið frá tveimur stöðvum var sent á staðinn auk sjúkrabíla.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu virðist um minni eld að ræða en talið var í fyrstu en slökkviliðsmenn voru nýkomnir á staðinn þegar fréttastofa ræddi við varðstjóra klukkan tíu mínútur í þrjú. Hann hafði því takmarkaðar upplýsingar um tjón vegna brunans eða hvort slys hafði orðið á fólki að svo stöddu.

Frá Ljósheimum í dag.Vísir/Egill



Fleiri fréttir

Sjá meira


×