Lúxuslíf á Spáni í eigin húsnæði Domusnova kynnir 27. febrúar 2019 08:45 Kynningarfundur á fasteignakaupum á Spáni verður haldinn á Hotel Natura á morgun mill klukkan 18 og 20. Domusnova
Domusnova fasteignasala býður til kynningarfundar á Hótel Natura á morgun klukkan 18. Þar gefst sólþyrstum íslendingum tækifæri á að kynna sér fasteignakaup á Spáni. Aðalsteinn Bjarnason, verkefnisstjóri spánareigna hjá Domusnova segist verða var við mikla eftirspurn og forvitni um fasteignir í sólinni. Ýmist dreymir fólk um að eignast húsnæði á Spáni til að dvelja í fríum sínum eða setjast þar að enda fær fólk mun meira fyrir krónurnar á Spáni en hér heima.Aðalsteinn Bjarnason, verkefnisstjóri spánareigna hjá Domusnova segir mikla eftirspurn eftir fasteignum í sólinni.„Við finnum fyrir aukinni eftirspurn og frá fólki á öllum aldri. Mjög margir eru í þeim aldurshópi sem vilja minnka við sig í húsnæði hér heima og losa þannig fjármagn til að fjárfesta í sumarhúsi á Spáni. Þá eru stórfjölskyldan að taka sig saman um að kaupa fasteign úti til að samnýta í fríum og leigja hana út þess á milli. Ungt fólk vill einnig flytjast búferlum enda býður tæknin upp á að margir geta unnið vinnuna sína hvar sem er í heiminum í dag. Þarna úti eru góðir barna- og grunnskólar og öll þjónusta sem þarf fyrir fjölskyldufólk. Á Spáni er mun ódýrara að lifa en hér á Íslandi, matarkarfan er ódýrari og öll þjónusta í heilbrigðiskerfinu, lyfjakostnaður einnig, þar er ódýrara að fara út að borða og ódýrara að versla. Það er meðal annars þessi þægilegi lífsstíl sem við eigum við með slagorði okkar „Lúxus á Spáni“,“ segir Aðalsteinn.Vandaðir og glæsilegir íbúðakjarnarDomusnova býður eingöngu nýbyggingar og þá sérstaklega á svæðinu norðan við borgina Alicante, nánar tiltekið á Finestrat svæðinu upp við Benidorm. „Á þessu svæði hefur viðskiptavinurinn úr nokkrum íbúðakjörnum að velja sem eru vel hannaðir og útbúnir öllum þeim þægindum sem fylgir því að lifa í lúxus. Svæðin eru til að mynda afmörkuð og lokuð með öryggisgæslu sem veitir eigendum auka öryggi, sérstaklega ef fasteignin stendur ónotuð í einhvern tíma. Í nánasta nágrenni má svo finna alla helstu þjónustu,” segir Aðalsteinn. Einnig má finna ýmsa afþreyingu, hvort sem er til hreyfingar eða afslöppunar og má þá nefna golfvelli, skemmtigarðinn Terra Mitica, gönguleiðir, líkamsrækt, nudd og spa.„Sérsniðnar íbúðir fyrir golfáhugafólk eru svo í boði á Las Colinas, nálægt hinum þekkta golfvelli. Þær eru sérsniðnar að því leiti að fólk getur upplifað þann lúxus sem fylgir því að eiga fasteign nálægt svona flottum golfvelli þar sem hægt er að fá aðgang að glæsilegri aðstöðu og aðgengi að strandklúbb.“Ný fasteign umfram notaðaAllar spánareignirnar á söluskrá Domusnova eru ýmist í byggingu eða nýbyggðar og segir Aðalsteinn að um nýjan og hagkvæmari byggingastíl að ræða en þann stíl sem aðallega var byggt í fyrir um 10-15 árum. „Áherslur hafa breyst í byggingaframkvæmdum á Spáni á síðustu árum. Nú er áherslan lögð á gæði umfram magn. Stíllinn er nútímalegur og fellur vel að norður evrópskum og skandinavískum smekk. Þessar byggingar skera sig úr, nýju byggingarnar eru stílhreinar, hvítar og með stórum gluggum. Þær mæta nýjum stöðlum Evrópusambandsins varðandi orkuhagkvæmni og er orkukostnaður minni í nýjum byggingum en í eldri eignum. Það er því mun hagkvæmara til langs tíma að reka nýja fasteign,“ útskýrir Aðalsteinn. Valið milli þess að kaupa nýtt eða notað ætti því ekki að vera spurning að mati Aðalsteins því það sé bæði öruggara og einfaldara að kaupa nýja fasteign en að kaupa notaða eign þar sem ýmislegt óvænt getur komið upp. „Samstarfsaðilar okkar, Gua properties hjá Global Urban Advisors, vinna eingöngu með traustum verktökum sem hafa 30 – 50 ára reynslu í byggingabransanum og hafa gott orðspor. Hverri byggingu fylgir greinargóð skilalýsing á því sem kaupandi á að fá við afhendingu og ef eitthvað stenst ekki er byggingaraðilans að bæta það. Byggingaraðili veitir tíu ára ábyrgð á byggingunni,“ segir Aðalsteinn.Einfalt ferli og hagstæð lánakjörLánakjör á Spáni eru góð að sögn Aðalsteins, yfirleitt eru um 3 - 4% vextir á lánum og er lánað upp að 70 % af kaupverði. Á kynningarfundinum á morgun mun spænski samstarfsaðili Domusnova kynna starfsemi sína og hvernig kaupferlið gengur fyrir sig. Einnig mun fólki bjóðast að skrá sig í sýningarferðir til Spánar. „Ef að fólk hefur áhuga á að koma út til Spánar til að skoða þessar eignir líkt og við höfum sjálfir gert, þá mun fólk virkilega finna hve frágangurinn er vandaður og hvað þetta eru glæsilegar eignir sem við erum að bjóða fólki að kaupa. Við bjóðum svo allt að 150.000 krónur endurgreiddar til að koma til móts við ferðakostnað ef keypt er fasteign hjá okkur, hvort sem það fer á eigin vegum eða með okkar aðstoð,“ útskýrir Aðalsteinn.Kynningarfundurinn á Hótel Natura byrjar klukkan 18 á morgun, fimmtudag, og stendur til klukkan 20. Allir sem mæta fá vandaðan nýjan kynningarbækling frá Domusnova. Hér er hægt að skrá sig á kynningarfundinn. Boðið verður upp á léttar veitingar og allir að sjálfsögðu velkomnir.Nánari upplýsingar á www.domusnova.isÞessi kynning er unnin í samstarfi við Domusnova.
Húsnæðismál Sumarlífið Mest lesið Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Lífið Tíu ráð Höllu fyrir börn sín og þín til bjargar framtíðinni Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Lífið Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Lífið „Nú er þessi sprettur á enda“ Lífið Fleiri fréttir Bylgjulestin af stað - fyrsta stopp Vestmannaeyjar „Tek bara þátt til að vinna“ - Marthe sigraði uppskriftakeppni Bylgjunnar og Gott í matinn Barnið þitt verður forseti Íslands í persónusniðinni barnabók Verndum andlitið alla daga með NIVEA sólarvörn „Gerið hjartastuðtækið klárt“ – úrslit í Leikið um landið Kolsýrður íslenskur próteindrykkur slær í gegn Afmælisafsláttur Skanva í fullum gangi Spennan í hámarki fyrir lokadaginn Handgerðir leirpottar fyrir kröfuharða kaupendur Nutrilenk liðbætiefnin breyta öllu á álagstímum „Bannað að hvísla að dómaranum!!“ Átakanleg saga um erfiðar ákvarðanir, sekt og áföll, fegurð og ást, líf og dauða Í sumarform á 6 vikum Sigurviss lið hefja leikinn í Leikið um landið Langar þig að fylgjast með vinsælum húðmeðferðum? Sameinaðu hreyfingu og hlátur í Lyfjugöngunni Endurkast sólarljóss jafn skaðlegt og beint sólarljós X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Sjá meira