Tíu ráð Höllu fyrir börn sín og þín til bjargar framtíðinni Stefán Árni Pálsson skrifar 7. desember 2016 15:30 Halla Tómasdóttir með fín ráð. vísir/anton brink
Halla Tómasdóttir, frumkvöðull, fjárfestir og forsetaframbjóðandi skrifar einlægt bréf til barnanna sinn tveggja á bloggsíðu sinni. Greinin ber nafnið Tíu vel valin ráð frá mömmu. Halla er gift Birni Skúlasyni viðskiptafræðingi og saman eiga þau tvö börn en bréfið er stílað til Tómasar og Auði. Bréfið hefst á þessum orðu; „Árið sem er að líða undir lok var merkilegt ár í lífi okkar fjölskyldunnar sem og í heiminum öllum. Ég er djúpt hugsi yfir þeim veruleika sem blasir við ykkar kynslóð og finn mig knúna til að hvetja ykkur til dáða á grunni góðra ráða. Það er í ykkar höndum að standa ykkur betur en við höfum gert og ég trúi og treysti ykkur vel til þess. Megi þessi tíu ráð verða til þess að þið og ykkar kynslóð leiði okkur öll til betri vegar,“ og svo setur hún fram tíu frábær atriði sem gætu hjálpað öllum.1. Temjið ykkur auðmýkt Um leið og ég treysti ykkur til góðra verka og vil sjá ykkur hugsa án takmarkana um tækifærin í lífinu, þá hvet ég ykkur til að nálgast hvert verkefni og hverja manneskju af auðmýkt. Engin manneskja er merkilegri en önnur en öll höfum við eitthvað sérstakt fram að færa. Hlustið á hugmyndir annarra og sýnið samferðafólki ykkar einlæga athygli. Heilbrigð sjálfsmynd byggir á að þekkja styrkleika sína vel en skynja jafnframt hvar og hvernig aðrir geta bætt mann. Þegar þið gerið mistök, og þið munið gera mörg mistök, þá hvet ég ykkur til að viðurkenna þau og nýta lærdómstækifærin sem í þeim felast. Munið að þið eruð einstök og stórkostleg alveg eins og þið eruð, en varist að láta egóið vaxa ykkur yfir höfuð. Þið eruð nefnilega líka hluti af mikilvægri og stórkostlegri heild sem ykkur ber að virða. Horfið því ávallt til áhrifa ykkar á samfélag og náttúru og tryggið að þið gefið meira en þið takið. Hugsið meira VIÐ og minna ÉG og ykkur mun farnast vel.2. Veljið samferðafólk og fyrirmyndir vandlega Leitið eftir nærandi félagsskap og góðum fyrirmyndum. Finnið þá sem ganga á undan með góðu fordæmi og hafa hugrekki til að synda gegn straumnum og gera það sem réttara er. Umgangist þá sem gera ykkur enn betri. Forðist hjarðhegðun og félagsskap og fyrirmyndir sem hvetja ykkur til þess að gera og segja hluti til að falla í hópinn og gera ykkur þar með illa kleift að lifa í sátt við ykkur sjálf og þá sem þið elskið.3. Verið þakklát Munið að þakka fyrir allt sem þið hafið. Þið búið í gjöfulu landi, eigið stóra og samheldna fjölskyldu og fjölda vina. Þið borðið hreinan og góðan mat og njótið menntunar og lífsgæða sem marga dreymir um en fá aldrei. Gerið þakklæti að daglegu veganesti, þakkið í hljóði og upphátt á hverjum degi fyrir allt það góða sem í lífi ykkar er og þá mun ykkur aldrei skorta neitt.4. Gerið allt sem þið gerið á grunni góðra gilda Látið góð gildi vera ykkur leiðarljós í lífinu. Takið engar stórar ákvarðanir án þess að máta þær við ykkar grunngildi. Við höfum gert okkar besta til að ala ykkur upp við þau gildi sem við teljum verða ykkur til góðs, en það er ykkar að velja ykkar lífsgildi og láta þau varða ykkar vegferð. Fátt mun reynast ykkur betra veganesti í lífinu.5. Gefist ekki upp, þó á móti blási Lífið er yndislegt, en það er hvorki einfalt né auðvelt. Þið munið mæta mótbyr en ykkar viðbrögð við áskorunum og erfiðleikum munu hafa mest áhrif á það hvernig ykkur farnast í lífi og starfi. Ekki vera fórnarlömb, það leysir ekkert, veldur bara óhamingju. Veljið bjartsýni og seiglu þó á móti blási og haldið ótrauð áfram veginn með trú, von og kærleika.6. Veljið orð ykkar vandlega Verið góð við aðra. Takið aldrei þátt í einelti og sýnið styrk til að standa sterk gegn slíkri hegðun og slíkum félagsskap. Skrifið hvorki né segið orð sem þið mynduð ekki þiggja með þökkum sjálf. Orð meiða og við búum því miður á fordæmalausum tímum og fólk grípur fljótt til hatursfullrar og grimmrar orðræðu. Verið gagnrýnin, við eigum að rýna til gagns, en veljið orð ykkar vel og hafið aðgát í nærveru hverrar sálar. Gleymið aldrei að þeir sem hata eru oftast hjálpar þurfi, hafið ykkur því yfir hatrið með yfirvegun og kærleika og látið aldrei aðra draga ykkur niður á svo lágt plan að þið séuð ekki stolt af hverju orði sem frá ykkur fer. Ef þið misstígið ykkur, biðjist afsökunar af auðmýkt.7. Verið leiðtogar OG góðir liðsmenn Ég hef óbilandi trú á ykkur og sé í ykkur sanna leiðtoga. Þið hafið hæfileika til þess að fá aðra með ykkur og ég vona einlæglega að þið nýtið þá gjöf til góðra verka. Ég vona jafnframt að þið leggið ykkur jafn vel fram um að vera góðir liðsmenn þegar aðrir leiða. Ræktið með ykkur auðmýkt, samskiptahæfni og ástríðu fyrir árangri og þið munið blómstra.8. Verið lærdómsfús og sveigjanleg Við lifum í veröld breytinga og þið munuð bæði hitta fyrir fólk og aðstæður munu vekja með ykkur ótta. Aldrei láta óttan bera ykkur ofurliði. Hann er lamandi afl og vondur húsbóndi. Verið lærdómsfús og tilbúin til að aflæra það sem ekki virkar. Náið ykkur stöðugt í nýja þekkingu og temjið ykkur ný vinnubrögð og viðhorf í takt við aðstæður hverju sinni. Verið sveigjanlegir eilífðarstúdentar.9. Finnið ykkar sanna tilgang Þið eruð gædd einstökum hæfileikum, nýtið þá vel. Verið óhrædd við að prófa þá í ólíkum verkefnum í lífinu en leitist við að finna ykkar eina sanna tilgang og eltið hann óttalaust og af ástríðu.10. Verið þið sjálf Þið búið að því að eiga ágæta foreldra og marga fjölskyldumeðlimi sem ávallt eru tilbúnir til að ráða ykkur heilt. Þið hafið notið leiðsagnar fjölda góðra kennara og þjálfara og munið gera áfram. En þegar öllu er á botninn hvolft, þá er stærsta verkefni lífs ykkar að vera þið sjálf. Að láta lífið ekki leika ykkur þannig að þið reynið að vera eitthvað annað en það sem þið eruð einlæglega hér til að vera og gera.
Mest lesið Æðisleg tilfinning að þurfa ekki að geðjast fólki Tónlist Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka Lífið „Tíu ár en enginn hringur“ Makamál „Þetta var svolítið biblíuleg mynd“ Lífið Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Ósanngjarnt hvernig stúlkan var dregin inn í umræðu sem var að miklu leyti „algjör þvæla“ Lífið Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Fleiri fréttir Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka „Þetta var svolítið biblíuleg mynd“ Bein útsending: Heimir Guðjóns og Höddi Magg í einvígi aldarinnar Kappakstur milli Hjálmars og Magneu Tískan sýndi trúnaðarbrest í hruninu Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Óhefðbundinn páskamatseðill að hætti Sigurðar Laufdal á OTO Knattspyrnufólk og bransastjörnur fjölmenntu í bíó Líkt við apa og klappað eins og hundi Barnalán hjá Batman Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? „Ég get ekki gert upp á milli barna“ Þingforseti, borgarfulltrúi og Frikki Dór í fjölmennu útgáfuhófi Handboltagoðsögn selur glæsihús í Garðabæ Bein útsending: Veglegir vinningar í páskabingói Blökastsins Ætlaði sér alltaf að verða leikari Júlí Heiðar og Þórdís eiga von á stelpu: „Djöfull var ég tekin“ Sacha Baron Cohen æfareiður út í Rebel Wilson Chess After Dark strákarnir boða til einvígis aldarinnar Arnar Grant og Vítalía á kaffihúsi og RÚV þrenna í miðborginni Fjandinn laus þegar málshættina vantar Palli snöggreiddist þegar hann var sakaður um að hafa verið tjokkó Undurfagrar páskaskreytingar Keypti íbúðina af huggulegustu hommum landsins Myndaveisla: Bjarni Ben skálaði fyrir einstökum Audi Eyþór stillti Eivøru upp við vegg og lét hana flytja lagið Running Up That Hill „Harry Klein“ er látinn Stjörnulífið: Hlustendaverðlaunin, ferðalög og afmælisgleði Sjá meira