Viðskipti erlent

Euronext hækkar tilboð sitt í kauphöllina í Ósló um 9 prósent

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Kauphöllin í Osló.
Kauphöllin í Osló. Nordicphotos/Getty
Evrópska kauphallarsamstæðan Euronext hefur hækkað tilboð sitt í kauphöllina í Ósló og yfirboðið þannig bandaríska kauphallar­risann Nasdaq.

Nýjasta tilboð Euronext hljóðar upp á 158 norskar krónur á hlut en samkvæmt tilboðinu er norska kauphöllin metin á um 700 milljónir evra, jafnvirði um 95,3 milljarða íslenskra króna. Til samanburðar var fyrra tilboð Euronext, frá því í síðasta mánuði, 145 norskar krónur á hlut en stjórn kauphallarinnar í Ósló hafði áður samþykkt tilboð Nasdaq sem hljóðaði upp á 152 norskar krónur á hlut.

Ríflega helmingur eigenda hlutabréfa í norsku kauphöllinni styður tilboð kauphallarsamstæðunnar en tilboð Nasdaq nýtur aðeins stuðnings hluthafa sem fara með samanlagt um 35 prósenta hlut í kauphöllinni. Hins vegar hefur stjórn kauphallarinnar í Ósló sagst styðja tilboð síðarnefnda kauphallarfyrirtækisins.

Forsvarsmenn Euronext, sem rekur meðal annars kauphallir í París, Amsterdam, Brussel og Lissabon, hafa sagst ætla að halda sérkennum norsku kauphallarinnar og styrkja Ósló í sessi sem fjármálamiðstöð, verði tilboði þeirra tekið.

Til viðbótar við kaupverðið hafi bæði Euronext og Nasdaq, sem rekur kauphallir á Norðurlöndunum, þar á meðal á Íslandi, lofað að greiða seljendum um sex prósenta árlega vexti þangað til viðskiptin ganga í gegn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×