Körfubolti

LeBron með þrennu en tapaði og þurfti að hlusta á „Kobe er betri“ sönginn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James.
LeBron James. AP/John Bazemore
Boston Celtics virðist vera komið með tak á Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta, Golden State Warriors hafði betur í hörkuleik á móti Utah Jazz, Los Angeles Lakers tapaði með LeBron James og Anthony Davis var vandræðalega lélegur í stórtapi New Orleans Pelicans á heimavelli.





Kevin Durant skoraði 28 stig þegar Golden State Warriors vann 115-108 sigur á Utah Jazz í hörkuleik. Stephen Curry var kaldur framan af leik en setti niður tvo stóra þrista í lokin og endaði með 24 sitg.

Klay Thompson skoraði 22 stig fyrir Golden State liðið og DeMarcus Cousins var með 12 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar. Þetta var fimmti sigurleikur Golden State Warriors í röð og enn fremur sá sextándi í síðustu sautján leikjum.

Í leikjunum á undan hafði Golden State lent 17 stigum undir á móti Phoenix og 19 stigum undir á móti Miami og unnið samt. Nú var liðið 91-84 undir í byrjun fjórða leikhluta en breytti leiknum með 21-4 spretti.

Donovan Mitchell var með 25 stig fyrir Utah liðið og Rudy Gobert bætti við 13 stigum og 16 fráköstum. Þetta var 46. tvenna hans á tímabilinu.









Nýliðinn Trae Young var flottur þegar Atlanta Hawks vann 117-113 sigur á LeBron James og félögum í Los Angeles Lakers. Young endaði með 22 stig og 14 stoðsendingar en John Collins skoraði einnig 22 stig fyrir Hawks.

LeBron James var með þrennu í leiknum, 28 stig, 16 stoðsendingar og 11 fráköst, en það dugði ekki til. Hann þyrfti einnig að hlusta á áhorfendurna í Atlanta syngja „Kobe er betri“ í þessum leik.

Eftir þetta tap er útlitið ekkert alltof bjart fyrir Lakers í baráttunni fyrir sæti í úrslitakeppninni. „Við annaðhvort komumst þangað eða ekki. Ekki hafa áhyggjur af því,“ sagði LeBron James eftir leik.





Gordon Hayward skoraði 26 stig og setti niður mjög stóra þriggja stiga körfu á lokamínútunum þegar Boston Celtics vann 112-109 útisigur á Philadelphia 76ers. Þetta var þriðji sigur Celtics á Sixers liðinu í vetur en sá fyrsti eftir að Philadelphia bætti við nýjasta stjörnuleikmanni sínum.

Það sem meira er að Boston Celtics var án Kyrie Irving í leiknum sem tognaði á hné á laugardaginn. Al Horford var með 23 stig og Jayson Tatum skoraði 20 stig og tók 10 fráköst.

Joel Embiid var mðe 23 stig og 14 fráköst og Jimmy Butler skoraði 22 stig fyrir Philadelphia 76ers liðið. Þetta var fyrsta tapið hjá 76ers síðan að liðið fékk til sín Tobias Harris og í raun fall á fyrsta alvöru prófinu fyrir þetta nýsamsetta „súperlið“ í Austurdeildinni.

„Þetta er nýtt lið hjá okkur. Það eru hlutir sem við erum að vinna í og hlutir sem við þurfum að gera betur. Þetta var samt gott próf fyrir okkur til að átta okkur á því hvar við erum staddir. Ég er spenntur yfir okkar hóp og sjá hve langt við getum farið,“ sagði Ben Simmons sem var með 16 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar.





Anthony Davis vill ekki spila lengur fyrir New Orleans Pelicans og það sást vel í nótt þegar hann skoraði aðeins 3 stig í 118-88 stórtapi á heimavelli á móti Orlando Magic. Nikola Vucevic pakkaði Davis saman en Davis hitti aðeins úr 1 af 9 skotum sínum á 24 mínútum.

Nikola Vucevic var með 25 stig og 17 fráköst fyrir Orlando-liðið, Evan Fournier skoraði 22 stig og Jonathan Isaac setti nýtt persónulegt met með því að skora 20 stig.









Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Golden State Warriors - Utah Jazz    115-108    

Memphis Grizzlies - San Antonio Spurs    107-108    

New Orleans Pelicans - Orlando Magic    88-118    

Philadelphia 76ers - Boston Celtics    109-112    

Atlanta Hawks - Los Angeles Lakers    117-113   

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×