Innlent

Næsta lægð í febrúar­syrpunni á leiðinni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það er vissara að fylgjast vel með veðurspánni og færð á vegum í dag.
Það er vissara að fylgjast vel með veðurspánni og færð á vegum í dag. vísir/vilhelm
Síðdegis í dag mun næsta lægð í febrúarsyrpunni koma upp að austanverðu landinu. Því má búast við rigningu við suðurströndina og á Austfjörðum en slyddu eða snjókomu til fjalla og inn til landsins að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Það mun bæta í ofankomuna síðdegis og því mun skyggni minnka verulega. Vestan til er tíðindaminna í veðrinu og ætti að sjást eilítið til sólar.

„Á morgun eru líkur á éljum í flestum landshlutum en rofar til austanlands, og svo er útlit fyrir áframhaldandi lægðagang og umhleypingar um og eftir helgi.

Það er enn talsvert rót á spám, og vissara að gera ekki langtímaplön um ferðalög eða útivist án þess að fylgjast vel með þróuninni,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu:

Breytileg átt, 3-10 m/s en suðvestan 8-15 austan til í fyrstu. . Skýjað með köflum eða léttskýjað en þykknar upp og fer að rigna á Austfjörðum og Suðausturlandi með morgninum en slydda eða snjókoma til fjalla. Dregur úr úrkomu um tíma eftir hádegi.

Rigning á láglendi austan til síðdegis, en snjókoma inn til landsins og él á Vestfjörðum. Suðvestan strekkingur og él í flestum landshlutum í nótt og á morgun en styttir upp og léttir til á Austurlandi. Frost 0 til 5 stig, en hiti 0 til 5 stig við suður- og suðausturströndina.

Á fimmtudag og föstudag:

Suðlæg eða breytileg átt og 5-13 m/s og víða él, en lengst af þurrt um landið norðaustanvert. Frost 0 til 6 stig, en hiti 0 til 4 stig við suðurströndina.

Á laugardag:

Fremur hæg austlæg átt og lengst af bjart í veðri en gengur í austan og norðaustan 8-15 m/s sunnan og vestan til um kvöldið og slydda eða snjókoma við suðurströndina. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum norðan til en hiti yfir frostmarki syðst um kvöldið.

Á sunnudag:

Austan- og norðaustanátt. Snjókoma norðan- og austanlands en annars þurrt að mestu. Dálitlar skúrir syðst um kvöldið en styttir að mestu upp norðaustan til. Hiti um frostmark, en vægt frost til landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×