Innlent

Atburðarás slagsmála við Borgarholtsskóla liggur fyrir

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Lögregla bíður fyrstu skýrslu af líðan mannsins, að sögn Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns.
Lögregla bíður fyrstu skýrslu af líðan mannsins, að sögn Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns. Vísir/vilhelm
Maðurinn sem slasaðist lífshættulega í slagsmálum við Borgarholtsskóla í gær liggur enn á spítala en ekki fengust upplýsingar um líðan hans hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mennirnir tveir sem áttu í hlut eru á fimmtugsaldri og þá liggur atburðarásin nokkuð skýrt fyrir, að sögn lögreglu.

Tilkynnt var um málið í dagbók lögreglu í gærkvöldi. Þar kemur fram að tveir einstaklingar hafi slegist svo heiftarlega við Skólaveg í Grafarvogi síðdegis í gær að annar var færður með sjúkrabifreið á slysadeild með lífshættulega höfuðáverka.

Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við Vísi að enginn hafi verið handtekinn vegna málsins. Aðspurður segir hann þó að vitað sé hver átti í hlut.

„Jú, jú, ég held að það sé nokkuð skýrt hvað gerðist þannig að það voru ekki taldir neinir rannsóknarhagsmunir í því að handtaka einhvern.“

Þá gat Margeir ekki sagt til um líðan mannsins sem fluttur var með lífshættulega höfuðáverka á slysadeild. Margeir segir manninn enn á spítala en lögregla bíði enn eftir fyrstu skýrslum af líðan  hans.

Aðspurður segir Margeir mennina tvo, sem eru á fimmtugsaldri, ekki tengjast Borgarholtsskóla. Þá vildi hann ekki segja til um það af hverju mennirnir slógust í gær en það sé á meðal þess sem verið er að rannsaka. Ekki fékkst heldur uppgefið hvort kært yrði í málinu.

„Málið er bara í rannsókn og við erum að skoða það, með tilliti til þess meðal annars,“ segir Margeir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×