Viðskipti innlent

Telur starfsemi Fótbolta.net í hættu vegna fjölmiðlafrumvarps

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Fótbolti.net hefur verið starfrækt í 17 ár.
Fótbolti.net hefur verið starfrækt í 17 ár.
Hafliði Breiðfjörð Guðmundsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda íþróttavefmiðilsins Fótbolta.net, telur að frumvarp menntamálaráðherra um endurgreiðslur til fjölmiðla geti gert út af við starfsemi vefmiðilsins.

Þetta kemur fram í umsögn Hafliða sem hann sendi fyrir hönd Fótbolta.net um frumvarpið.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur lagt fram til kynningar frumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla vegna kostnaðar sem fellur til við miðlun frétta, fréttatengds efnis og umfjöllunar um samfélagsleg málefni.

Styrkirnir verði í formi endurgreiðslu á allt að 25 prósent af hluta ritstjórnarkostnaðar. Hver fjölmiðill geti þó ekki fengið hærri upphæð en 50 miljónir í styrk árlega og heildarframlag ríkisins verði um 400 milljónir króna. Alls kyns skilyrði eru síðan sett um tíðni birtingar, efnistök og fjölda starfsmanna á ritstjórnum fyrir því að fjölmiðill fái styrk.

Hafliði Breiðfjörð.Vísir/Vilhelm

Erfitt að keppa um starfsfólk fái helstu samkeppnisaðilar styrk

Í umsögn Hafliða segir að verði lögin að veruleika verði það til þess að samkeppnisstaða fjölmiðla muni skekkjast. Að óbreyttu stefnir í að starfsemi Fótbolta.net uppfylli ekki skilyrði frumvarpsins til þess að hljóta endurgreiðslu þar sem hann sinnir aðeins íþróttum, nánar tiltekið knattspyrnu.

Í frumvarpinu segir að til þess að hljóta endurgreiðslu þurfi efni fjölmiðilsins að fjölbreytt og fyrir allan almenning á Íslandi.

Bendir Hafliði á að helstu samkeppnisaðilar Fótbolta.net séu einnig hluti af stærri fjölmiðlum sem uppfylli öll skilyrði frumvarpsins. Því muni samkeppnisstaða skekkjast verulega.

„Það þýðir að samkeppni um starfsfólk verður nánast vonlaus enda þurfum við að leggja fram 33% meiri pening til að greiða starfsmanni sömu laun og samkeppnisaðilarnir sem fá 25% endurgreiðslu. Þetta gæti gert út um starfsemi fjölmiðils sem hefur verið rekinn í 17 ár og alltaf greitt alla reikninga og gjöld á réttum tíma,“ segir í umsögninni.


Tengdar fréttir

Brýnna verk að skoða auglýsingasölu RÚV

Sveinn R. Eyjólfsson, einn reyndasti blaðaútgefandi landsins, telur frumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla litlu breyta fyrir þá miðla sem mestu máli skipti. Endurskoðun á stöðu RÚV á auglýsingamarkaði væri alvöru aðgerð.

Sjálfstæðismenn amast við fjölmiðlafrumvarpi

Óánægjuraddir innan raða Sjálfstæðismanna með fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur. Þingmenn segja hafa komið á óvart þegar ráðherrann sagði einhug í ríkisstjórn um málið. Lilja segist ekki hafa heyrt af óánægju Sjálfstæðismanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×