Enski boltinn

Capoue skaut Watford áfram

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Capoue fagnar marki sínu
Capoue fagnar marki sínu vísir/getty
Úrvalsdeildarlið Watford sló Championshipdeildar lið QPR úr ensku bikarkeppninni í kvöld. Etienne Capoue skoraði eina mark leiksins fyrir Watford.

Sigurmarkið kom í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Eftir klafs í teignum upp úr hornspyrnu náði Capoue að koma boltanum í netið og gestirnir í Watford fóru með forystu inn í hálfleikinn.

Heimamenn áttu sín færi til þess að skora í leiknum, Matt Smith og Luke Freeman áttu báðir góð færi snemma í seinni hálfleik áður en Toni Leistner misnotaði dauðafæri á lokamínútum leiksins.

Markið kom ekki og Watford er komið í átta liða úrslit keppninnar í annað skiptið á síðustu fjórum árum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×