Innlent

Landsréttur staðfesti dóm fyrir ofbeldi gegn stjúpsyni

Sylvía Hall skrifar
Umrædd brot áttu sér stað í október 2016 og janúar 2017.
Umrædd brot áttu sér stað í október 2016 og janúar 2017. Vísir/Vilhelm
Landsréttur staðfesti í gær sex mánaða skilorðsbundinn dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir konu fyrir ofbeldi gegn stjúpsyni sínum. Konan var dæmd í héraði árið 2017.

Umrædd brot áttu sér stað í október árið 2016 og í janúar 2017 og var ákæran í tveimur liðum. Konan var meðal annars ákærð fyrir að hafa slegið brotaþola í andlitið með flötum lófa í október 2016. Móðir drengsins bar vitni og sagðist hafa heyrt ákærðu slá brotaþola og beðið þau að hætta þessu. Framburður brotaþola um að ákærða hafi slegið hann samræmdist frásögn móður hans af atvikinu og var framburður hans metinn afar trúverðugur. 

Í janúar 2017 kvaðst drengurinn hafa komið seint heim úr skólanum með þeim afleiðingum að ákærða hafi reiðst og lamið hann í andlitið með opnum lófa. Hann hafi þá dottið og hélt að ákærða hefði þá sparkað í hann. Hann hafi staðið upp og ákærða hafi haldið við háls hans og haldið áfram að lemja hann. 

Í vottorði sérfræðilæknis á bráðamóttöku Landspítala kemur fram að brotaþoli hafi lýst verk í báðum vörum, nefi, hægra eyra, vinstri síðu og vinstri fæti. Þá hafi hann haft augljósa áverka í andliti, sár og bólgna neðri  vör. Þá mátti einnig finna mar á vinstri kinn og bólgið nef. 

Konan var meðal annars sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 218 gr. b. almennra hegningarlaga en í dómnum segir að ákvæðinu hafi verið bætt inn í almenn hegningarlög meðal annars með því markmiði að auka réttarvernd barna sem búa við ofbeldi á heimilum og tryggja að þau börn sem þurfi að þola alvarlegt eða endurtekið ofbeldi af hálfu nákominna hafi meiri og beinskeyttari réttarvernd en gildandi lög gerðu ráð fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×