Talin hætta á stjórnarslitum vegna Salvinis Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 18. febrúar 2019 08:30 Salvini vill forðast réttarhöld. Fréttablaðið/EPA
Fimm stjörnu hreyfingin, annar ítölsku stjórnarflokkanna, heldur stafræna atkvæðagreiðslu í dag um hvort flokkurinn ætli að koma í veg fyrir möguleg réttarhöld yfir Matteo Salvini, leiðtoga Bandalagsins, hins stjórnarflokksins. Þetta kom fram á vef hreyfingarinnar í gær en atkvæðagreiðsla um réttarhöldin fer fram í þingnefnd á þriðjudag. Saksóknarar í Catania á Sikiley vilja halda áfram rannsókn á meintri misbeitingu valds og mannráni sem á að hafa átt sér stað þegar Salvini fyrirskipaði að um 150 flóttamönnum skyldi vera haldið í ítölskum landhelgisgæsluskipum í fimm daga í ágúst síðastliðnum. Ríkisfréttastofan Ansa hafði eftir heimildarmönnum innan Fimm stjörnu hreyfingarinnar í gær að málið gæti hæglega fellt stjórnina, fari svo að hreyfingarfólk ákveði að standa ekki í vegi fyrir saksóknurum. Sambandið á milli stjórnarflokkanna er stirt nú þegar vegna deilna um hin ýmsu mál. Salvini hefur sjálfur farið fram á við öldungadeild þingsins að hafna beiðni um réttarhöld. Það skapar vandamál fyrir Fimm stjörnu hreyfinguna sem hefur ítrekað gagnrýnt stjórnmálamenn fyrir að nota vald sitt til að komast hjá réttarhöldum. Stjórnmálaskýrandi hjá Fatto Quotidiano sagði Fimm stjörnu hreyfinguna í ákveðinni tilvistarkreppu vegna málsins.
Birtist í Fréttablaðinu Ítalía Mest lesið Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Fleiri fréttir Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Sjá meira